Rekstrarskilyrði í sjávarútvegi versnað

Rekstrarskilyrði í sjávarútvegi hafa versnað, segja SFS.
Rekstrarskilyrði í sjávarútvegi hafa versnað, segja SFS. mbl.is/Eggert

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja að rekstrarskilyrði í sjávarútvegi hafi versnað og ekki er útilokað að álagning veiðigjalds fyrir næsta fiskveiðiár muni reynast einhverjum smærri og meðalstórum útgerðum ofviða. Slíkt gæti aukið samþjöppun í sjávarútvegi. Tilefnið er að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra birti í dag reglugerð um veiðigjald fyrir komandi fiskveiðiár. Þetta kemur fram í tilkynningu.  

Í reglugerð ráðuneytisins um veiðigjald er miðað við áætlað aflamark verði gjaldið um það bil 10,5 til 11,0 milljarðar króna, sem væri hækkun um 6 milljarða frá yfirstandandi fiskveiðiári, eða ríflega tvöföldun. Hækkun veiðigjalds vegna þorsks nemur 107%, ýsu 127% og makríls 18%.

„Rekstrarskilyrði í sjávarútvegi hafa versnað og ekki er útilokað að álagning veiðigjalds fyrir næsta fiskveiðiár muni reynast einhverjum smærri og meðalstórum útgerðum ofviða. Slíkt gæti aukið samþjöppun í sjávarútvegi.“ Þetta kemur jafnframt fram í tilkynningu. 

„Þetta er mikil hækkun sem mun koma hart niður á fjölmörgum útgerðum og þær eru misjafnlega í stakk búnar til að standa undir gjaldinu. Hjá sumum útgerðum getur hækkunin verið allt að fjórföld. Álagningin byggist á gömlum afkomutölum, eins og undanfarin ár, en aðstæður hafa breyst mjög til hins verra á liðnum misserum; gengi krónunnar hefur styrkst og tekjur gjaldeyrisskapandi fyrirtækja dregist verulega saman. Á sama tíma hefur kostnaður í íslenskum krónum, eins og vegna aðfanga og launa, hækkað mikið.“ Þetta er haft eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS, í tilkynningu.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »