Mikil tímamót í rekstrinum

Cuxhaven siglir frá Álasundi í sína fyrstu veiðiferð.
Cuxhaven siglir frá Álasundi í sína fyrstu veiðiferð. Ljósmynd/Samherji
Cuxhaven NC-100, nýtt skip Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja í Þýskalandi, hefur haldið á veiðar. Cuxhaven er hannað af Rolls Royce, 80 metra langt og 16 metra breitt, og er smíðað í Mykleburst-skipasmíðastöðinni í Noregi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja en þar segir að Cuxhaven sé fyrsta nýsmíði Deutsche Fischfang Union í 21 ár. Skipið sem þá var smíðað bar einnig nafnið Cuxhaven.

Eigendur Samherja, ásamt Haraldi Grétarssyni framkvæmdastjóra Deutsche Fischfang Union og Óskari Ævarssyni útgerðarstjóra, tóku á móti skipinu 15. ágúst sl. í Álasundi, að því er fram kemur á vef Samherja. Þá voru veiðarfæri tekin um borð og skipið gert klárt að öðru leyti, og hélt það svo til veiða í Barentshafi 20. ágúst.

Skipstjórar eru þeir Stefán Viðar Þórisson og Hannes Kristjánsson.

Óskar Ævarsson, útgerðarstjóri DFFU, Hannes Kristjánsson skipstjóri, Stefán Viðar Þórisson …
Óskar Ævarsson, útgerðarstjóri DFFU, Hannes Kristjánsson skipstjóri, Stefán Viðar Þórisson skipstjóri og Haraldur Grétarsson, framkvæmdastjóri DFFU. Ljósmynd/Samherji

Áskorun að fá allt til að virka

Í tilkynningunni segir enn fremur að Cuxhaven sé afar vel búið á allan, hátt bæði hvað varðar vélbúnað, vinnslu og aðbúnað áhafnar, sem geti orðið allt að 35 manns.

„Með nýjustu tæknilausnum er skipið mun hagkvæmara í rekstri og umhverfisvænna en eldri skip. Vinnsludekk er hannað og smíðað af Slippnum á Akureyri og Optimar í Noregi og hefur búnað m.a. frá Vélfag á Ólafsfirði,“ segir í tilkynningunni. 

„Þetta eru mikil tímamót í rekstri DFFU hér í Þýskalandi,“ er haft eftir Haraldi Grétarssyni, framkvæmdastjóra Deutsche Fischfang Union GmbH. 

„Meðal annars hefur allur aðbúnaður áhafnar og vinnuaðstaða verið stórbætt. Það er mikil áskorun að fá allt til að virka í svona tæknilega flóknu skipi og næstu vikur verða því spennandi hjá okkur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »