Tíu stærstu með tæpan helming kvótans

Þerney, skip HB Granda, í Reykjavíkurhöfn.
Þerney, skip HB Granda, í Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tíu stærstu útgerðirnar fá úthlutað sem nemur 49,73% af því aflamarki sem Fiskistofa úthlutar fyrir fiskveiðiárið 2017/2018. Alls fá 372 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað aflamarki nú, og fækkar þeim um 26 frá því í fyrra.

Þetta má ráða af gögnum Fiskistofu um úthlutun aflamarks, sem gerð var nú um mánaðamótin.

Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá þá úthlutað sem nemur um 87,8% af því aflamarki sem úthlutað er og er það 1,2 prósentustigum hærri tala en í fyrra. Alls fá 372 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða um 26 aðilum færra en í fyrra. 

Mestu úthlutað fær HB Grandi til sinna skipa, eins og í fyrra, eða 9,5% af heildinni. Næst kemur Samherji með 5,9% og þá Þorbjörn hf. með 5,5%. Þetta er sama röð efstu fyrirtækja og undanfarin ár, að því er fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni.

Samdráttur í karfa

Segir þar að að þessu sinni sé úthlutað 375.589 þorskígildistonnum, saman borið við um 365.075 tonn í fyrra. Aukning á milli ára samsvarar því um 10.500 tonnum.

Úthlutun í þorski er um 203 þúsund tonn og hækkar um tæp níu þúsund tonn frá fyrra ári. Ýsukvótinn er þá 31.732 tonn og hækkar um 4.200 tonn, en sama aukning er í ufsakvótanum.

Tæplega 1.700 tonna samdráttur er úthlutun á gullkarfa og tæplega 1.100 tonna samdráttur í  djúpkarfa. Þá er úthlutun í íslenskri sumargotssíld 29.000 tonnum lægri en í fyrra. Úthlutað aflamark er alls 422.786 tonn sem er tæplega 6.600 tonnum minna en á fyrra ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.4.24 478,04 kr/kg
Þorskur, slægður 22.4.24 473,17 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.4.24 198,80 kr/kg
Ýsa, slægð 22.4.24 130,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.4.24 194,64 kr/kg
Ufsi, slægður 22.4.24 233,38 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 22.4.24 192,76 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.920 kg
Þorskur 3.967 kg
Skarkoli 603 kg
Hlýri 32 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 10.547 kg
22.4.24 Björgúlfur EA 312 Botnvarpa
Karfi 8.834 kg
Samtals 8.834 kg
22.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 693 kg
Grásleppa 241 kg
Samtals 934 kg
22.4.24 Daðey GK 777 Lína
Þorskur 5.605 kg
Langa 603 kg
Samtals 6.208 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.4.24 478,04 kr/kg
Þorskur, slægður 22.4.24 473,17 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.4.24 198,80 kr/kg
Ýsa, slægð 22.4.24 130,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.4.24 194,64 kr/kg
Ufsi, slægður 22.4.24 233,38 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 22.4.24 192,76 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.920 kg
Þorskur 3.967 kg
Skarkoli 603 kg
Hlýri 32 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 10.547 kg
22.4.24 Björgúlfur EA 312 Botnvarpa
Karfi 8.834 kg
Samtals 8.834 kg
22.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 693 kg
Grásleppa 241 kg
Samtals 934 kg
22.4.24 Daðey GK 777 Lína
Þorskur 5.605 kg
Langa 603 kg
Samtals 6.208 kg

Skoða allar landanir »