Fyrsta fiskiskipið til að hafa rafmótor

Stormur HF sigldi inn í Reykjavíkurhöfn í gær.
Stormur HF sigldi inn í Reykjavíkurhöfn í gær. mbl.is/Hari

Stormur HF 294, nýtt línu- og netaskip útgerðarinnar Storms Seafood sem sigldi til Reykjavíkurhafnar í gær, er fyrsta fiskiskipið á Íslandi sem drifið er af rafmótor og sömuleiðis fyrsta nýsmíði í línuskipaflota landsmanna í 16 ár.

Eins og Morgunblaðið greinir frá í dag kemur skipið hingað frá Gdansk í Póllandi, þar sem skrokk­ur­inn var lengd­ur úr 23 í 45 metra en út­gerðin keypti skrokk­inn í Ný­fundna­landi fyr­ir nokkr­um árum.

Ljóst er að rafbúnaður skipsins mun minnka umhverfisáhrif og auka hagkvæmni við veiðar.

Marki tímamót í íslenskum sjávarútvegi

Steindór Sigurgeirsson, aðaleigandi Storms Seafood, segir í samtali við 200 mílur að skipið sé „dísil-rafknúið“ (e. diesel-electric) þar sem skrúfubúnaðurinn sé knúinn af rafmótor.

„Orkan er fengin með dísil-eldsneyti, sem drífur rafmótorinn,“ segir Steindór og bætir við að hann telji að með þessu sé orkunotkun helmingi minni en hjá sambærilegu skipi.

„Mikilvægt er að fleiri aðilar í sjávarútveginum líti til kaupa á skipum líkt og Stormi sem er afar umhverfisvænn og gengur fyrir rafmótor. Eldsneytisnotkun á sambærilegum skipum er afar mikil og þarf geirinn í heild að huga betur að loftslagsmálum,“ segir Steindór.

„Hagkvæmni við veiðar eykst einnig við komu skipsins en það er búið nýjustu gerð línubeitingarvélar sem tekur mun meira en sambærileg skip hér á landi. Það má því segja að koma skipsins marki tímamót í íslenskum sjávarútvegi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,87 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,61 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet
Grásleppa 1.138 kg
Þorskur 89 kg
Samtals 1.227 kg
23.4.24 Brimsvala SH 262 Handfæri
Þorskur 726 kg
Samtals 726 kg
23.4.24 Þytur MB 10 Handfæri
Þorskur 691 kg
Samtals 691 kg
23.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 1.756 kg
Þorskur 60 kg
Rauðmagi 12 kg
Steinbítur 6 kg
Skarkoli 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.836 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,87 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,61 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet
Grásleppa 1.138 kg
Þorskur 89 kg
Samtals 1.227 kg
23.4.24 Brimsvala SH 262 Handfæri
Þorskur 726 kg
Samtals 726 kg
23.4.24 Þytur MB 10 Handfæri
Þorskur 691 kg
Samtals 691 kg
23.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 1.756 kg
Þorskur 60 kg
Rauðmagi 12 kg
Steinbítur 6 kg
Skarkoli 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.836 kg

Skoða allar landanir »