Stjórnvöld treysti mörk lögsögunnar

Flogið yfir Eldey. Eyjarnar, skerin og drangarnir umhverfis Ísland hafa …
Flogið yfir Eldey. Eyjarnar, skerin og drangarnir umhverfis Ísland hafa mótað grunnlínur efnahagslögsögunnar um árabil. Eldeyjardrangur skammt frá Eldey er þar á meðal. mbl.is/RAX

Eigi hafsvæði Íslands ekki að skerðast á komandi árum, þurfa íslensk stjórnvöld að huga að því að lýsa mörkum hennar og skila gögnum þar að lútandi til Sameinuðu þjóðanna. Þetta segir dr. Snjólaug Árnadóttir, sem útskrifaðist í desember með doktorspróf í þjóðarétti frá Edinborgarháskóla.

Snjólaug kynnir í dag niðurstöður doktorsrannsóknar sinnar, sem fjallar um tilkall ríkja til auðlinda í hafi og þær breytingar sem verða á umfangi þessara réttinda þegar strandlínur breytast, til dæmis vegna hækkunar sjávarmáls, landrofs, landriss, eldgosa og manngerðra breytinga.

Fyrirlesturinn hefst klukkan tólf á hádegi í stofu V-102 í Háskólanum í Reykjavík.

Í samtali við Morgunblaðið bendir hún á að einhliða mörk lögsögu Íslands, þ.e. þar sem hafsvæði Færeyja og Grænlands skarast ekki við lögsöguna, séu ekki fyllilega traust í sessi að svo stöddu. Samkvæmt ákvæðum hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna þurfi að lýsa umræddum mörkum með kortum og hnitum fyrir aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.

Kolbeinsey er einn útvarða íslensku landhelginnar. Á komandi árum má …
Kolbeinsey er einn útvarða íslensku landhelginnar. Á komandi árum má búast við að hún fari á kaf, rétt eins og Geirfugladrangur. Ljósmynd/Sindre Skrede

Réttindin í meiri óvissu

„Það getur skipt miklu máli fyrir Ísland að einhliða mörk séu skráð í samræmi við hafréttarsamning SÞ, því Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur litið til þess við mat á gildi slíkra marka. Ef ríki mótmæla mörkunum ekki eftir að þau eru skráð má svo líta þannig á að þau hafi gefið þeim þögult samþykki sitt. En eins og staðan er núna, þá geta ríki mótmælt þeim hvenær sem er. Ef málið færi fyrir dómstóla þá væri aðeins hægt að byggja á einhliða mörkum að því marki sem þau uppfylla skilyrði þjóðaréttar. Við mat á því væri litið til þess hvort mótmæli hefðu komið fram eftir lögmæta skráningu.“

Í dómi Alþjóðadómstólsins í Haag, í máli Rúmeníu gegn Úkraínu, kom fram að ef búið er að lýsa einhliða mörkum fyrir aðalframkvæmdastjóra SÞ og engin mótmæli koma fram, þá fyrst geta mörkin orðið algjörlega bindandi. „Fram að þeim tíma eru réttindin okkar í meiri óvissu,“ segir Snjólaug.

Grunnlínur gætu sætt gagnrýni

Hafsvæði ríkja eru jafnan ekki mæld út frá strandlengjunni sjálfri heldur grunnlínum. Út frá þeim er meðal annars landhelgi og efnahagslögsaga ákvörðuð, þar með talin fiskveiðilögsaga sem er Íslendingum að sjálfsögðu mikið hagsmunamál. Almennt eiga þessar grunnlínur að fylgja stórstraumsfjöruborði strandlengju viðkomandi ríkis, en þegar hún er mjög vogskorin og óregluleg, eða ef strandeyjaröð er í næsta nágrenni, getur ríki dregið beina línu á milli viðeigandi grunnlínupunkta. Sú aðferð hefur verið notuð hér á landi.

Snjólaug segir grunnlínur Íslands geta sætt gagnrýni og tekur sem dæmi grunnlínuna sem dregin hefur verið þvert yfir Faxaflóann. Hún geti talist óhófleg á alþjóðlegan mælikvarða en mál vegna slíkra óhóflegra grunnlína hafa farið fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag.

„Við erum með nokkuð beinar grunnlínur, við lokum til dæmis Faxaflóa með línu þvert yfir han og notum grunnlínupunkta sem önnur ríki gætu véfengt, og byrjum í raun ekki að telja hafsvæðið okkar fyrr en út frá þeim línum,“ segir hún og bætir við:

„Ef allt færi á versta veg eftir mótmæli annars ríkis, þá þyrftum við að fara niður í venjulegar grunnlínur, sem færu í kringum hvert einasta sker og algjörlega meðfram strandlengjunni.“

Enn fremur bendir hún á að Geirfugladrangur undan ströndum Reykjaness sé að fara í kaf, og jafnvel megi halda því fram að sú sé þegar raunin. Drangurinn var áður um tíu metra hár en er nú flæðisker, og tapi hann stöðu sinni minnkar íslenska lögsagan um tíu til fimmtán þúsund ferkílómetra.

„Ef við viljum virkilega tryggja hann sem grunnlínupunkt, og treysta á að mörkunum verði ekki breytt þegar sum þeirra landsvæða sem við miðum við fara í kaf, þá verðum við að lýsa mörkunum fyrir aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.“

Snjólaug Árnadóttir, doktor í þjóðarétti.
Snjólaug Árnadóttir, doktor í þjóðarétti.

Miklar breytingar yfirvofandi

Doktorsritgerð Snjólaugar fjallar, eins og áður sagði, um tilkall ríkja til auðlinda í hafi og þær breytingar sem verða á umfangi þessara réttinda þegar strandlínur breytast, til dæmis vegna hækkunar sjávarmáls, landrofs, landriss, eldgosa og manngerðra breytinga. Þessar yfirvofandi breytingar gefi tilefni til að endurskoða viðteknar hugmyndir um landfræðilegan stöðugleika sem grundvöll réttinda í þjóðarétti, en fram til þessa hefur verið óljóst hvort gildandi reglur geri ráð fyrir að umhverfisbreytingar hafi áhrif á afmörkun hafsvæða milli aðlægra og mótlægra ríkja og hvort samningum megi rifta á grundvelli gjörbreyttra landfræðilegra aðstæðna.

„Ég varð ofboðslega heilluð af þessu sviði lögfræðinnar eftir að ég skráði mig í námskeið í hafrétti í Gautaborg. Þá bjó ég á pínulítilli eyju við hafið og fékk þetta alveg á heilann,“ segir Snjólaug. „Í kennslubókinni var ekkert fjallað um þessar yfirvofandi breytingar. Bara ein setning um að öll réttindi yfir hafsvæðum væru mæld frá strandlengjunni, þær væru hins vegar að breytast um allan heim og að enginn vissi hvað það hefði í för með sér.“

Mörgum spurningum var því ósvarað, fannst Snjólaugu, og afréð hún að leita þeirra svara.

„Mér fannst að einhver þyrfti að taka þetta fyrir og stökk til, enda spennandi og áhrifamikið viðfangsefni. Allar þessar yfirvofandi breytingar geta virkilega farið að breyta kortinu.“

Surtsey framlengdi lögsöguna

Hún segir breytingarnar líklega ekki munu koma jafn illa niður á Íslandi og mörgum öðrum ríkjum, enda sé gert ráð fyrir landrisi hérlendis vegna bráðnunar jökla.

„Þá geta réttindi okkar í raun aukist, og eins ef aðrar eyjar verða til við landið eins og í tilfelli Surtseyjar árið 1963. Þá verða til ný hafsvæði sem falla undir okkar lögsögu.

Þetta getur því komið sér vel fyrir okkur að þessu leyti, en á sama tíma standa ýmis lönd í Kyrrahafi frammi fyrir því að missa allt tilkall til hafsvæða, en um leið og landsvæði verða óbyggileg þá geta viðkomandi ríki ekki gert tilkall til tiltekinna hafsvæða á grundvelli þeirra.“

Snjólaug bendir á að Surtsey hafi til að mynda framlengt efnahagslögsöguna sem nemur fjarlægð hennar frá næsta fasta landi.

„Ekki er ljóst hvort Surtsey myndi skapa tilkall til efnahagslögsögu og landgrunns ef hún hefði til dæmis orðið til við eldgos á síðasta ári,“ segir hún. „Segja má að skilyrðin til að teljast eyja séu að verða stífari, eftir að ákvörðun gerðardóms í Suður-Kínahafsdeilunni síðastliðið sumar setti markið hátt. En vegna þess að við erum þegar búin að semja um hafsvæðið í kringum Surtsey þá verður því ekki breytt svo auðveldlega.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 4.588 kg
Ýsa 1.782 kg
Karfi 164 kg
Steinbítur 129 kg
Ufsi 27 kg
Langa 11 kg
Keila 11 kg
Samtals 6.712 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 4.588 kg
Ýsa 1.782 kg
Karfi 164 kg
Steinbítur 129 kg
Ufsi 27 kg
Langa 11 kg
Keila 11 kg
Samtals 6.712 kg

Skoða allar landanir »