Íslensku loðnuskipin voru að fá ágæt köst á föstudag og laugardag en í gær var erfitt að kasta vegna leiðindaveðurs. Flotinn var kominn að Vík í Mýrdal en eins hefur fengist afli austar með suðurströndinni. Norsku loðnuskipin hafa verið að veiðum úti fyrir Norðurlandi og fengu þar ágætis afla fyrir helgi. Nú eiga Norðmennirnir einungis eftir að veiða rúmlega 11.000 tonn en þeir mega veiða við landið til 23. febrúar.
Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Þar segir ennfremur, að lokið hafi verið við að landa úr Berki NK í Neskaupstað sl. nótt en alls voru fryst tæplega 1.400 tonn úr honum fyrir Asíumarkað. Vinnslan á afla Barkar gekk vel og þegar henni lauk kom röðin að Bjarna Ólafssyni AK en hann kom til hafnar í gær með 1.300 tonn sem fengust í fjórum köstum. Auk þessara skipa lönduðu Vilhelm Þorsteinsson EA og norsku skipin Østerbris og Hardhaus í Neskaupstað um helgina.
Í morgun var grænlenska loðnuskipið Polar Amaroq inni á Norðfjarðarflóa. Það mun landa í kvöld og á morgun en undir lok veiðiferðarinnar skoðuðu Polarmenn fjörurnar syðra í samstarfi við Hafrannsóknastofnun.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.4.24 | 478,06 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.4.24 | 474,37 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.4.24 | 203,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.4.24 | 130,57 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.4.24 | 194,31 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.4.24 | 233,45 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.4.24 | 189,26 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Kristín ÞH 15 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.294 kg |
Þorskur | 108 kg |
Ufsi | 55 kg |
Skarkoli | 10 kg |
Samtals | 1.467 kg |
23.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 870 kg |
Keila | 202 kg |
Steinbítur | 189 kg |
Ýsa | 143 kg |
Karfi | 31 kg |
Samtals | 1.435 kg |
23.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.955 kg |
Þorskur | 196 kg |
Skarkoli | 29 kg |
Steinbítur | 16 kg |
Samtals | 2.196 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.4.24 | 478,06 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.4.24 | 474,37 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.4.24 | 203,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.4.24 | 130,57 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.4.24 | 194,31 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.4.24 | 233,45 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.4.24 | 189,26 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Kristín ÞH 15 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.294 kg |
Þorskur | 108 kg |
Ufsi | 55 kg |
Skarkoli | 10 kg |
Samtals | 1.467 kg |
23.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 870 kg |
Keila | 202 kg |
Steinbítur | 189 kg |
Ýsa | 143 kg |
Karfi | 31 kg |
Samtals | 1.435 kg |
23.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.955 kg |
Þorskur | 196 kg |
Skarkoli | 29 kg |
Steinbítur | 16 kg |
Samtals | 2.196 kg |