„Þarf miklu víðtækari rannsóknir“

Venus landaði mestum afla íslenskra skipa á síðasta ári.
Venus landaði mestum afla íslenskra skipa á síðasta ári.

Í nótt var lokið við að landa loðnuafla Venusar NS á Akranesi, en með vinnslu á þeim afla lýkur loðnuvertíð hjá HB Granda þetta árið og kolmunnaveiðar í alþjóðlegri lögsögu vestur af Írlandi taka nú við.

Þetta kemur fram á vef útgerðarinnar. Segir þar að Víkingur AK hafi haldið áleiðis á miðin í fyrradag. Venus lagði svo af stað nú í hádeginu.

„Við vorum með um 2.000 tonna afla í þessum síðasta túr á loðnu,“ segir Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Venusi, en með þeim afla náðist heildarkvóti HB Granda á vertíðinni sem var alls 33.800 tonn.

Útilokað að segja til um stærð stofnsins

Guðlaugur segir loðnuvertíðina nú hafa einkennst af þeim litla kvóta sem gefinn var út.

„Veiðin fór mjög vel af stað í janúar en loðnan gekk mjög dreift með austur- og suðurströndinni. Við urðum að taka okkur hlé frá veiðum vegna kvótans þegar loðnan var við Langanes. Það var enginn að veiðum þegar loðnan var úti af Austfjörðum eða þegar hún gekk upp á grunnin við Suðausturland og ef litið er á það hve víða, fyrir sunnan, vestan og norðan, loðna hefur veiðst síðustu dagana er deginum ljósara að það er útilokað að hægt sé að segja til um það hve stofninn er stór,“ segir Guðlaugur.

„Til þess þarf miklu víðtækari rannsóknir. Það þarf að fylgjast með loðnunni öllum stundum og menn eiga ekki að þurfa að bíða í fleiri daga eftir nauðsynlegustu upplýsingum,“ segir hann og tekur fram að menn verði að fara að átta sig á því að hrygningarsvæði loðnunnar séu að færast norðar.

„Loðnan velur hitastig við hæfi líkt og aðrir fiskar. Það er nærtækast að líta á ýsuna sem fyrr á árum hrygndi aðallega við suðurströndina. Nú hrygnir ýsan úti af Norðurlandi.“

Á kolmunnaveiðum. Mynd úr safni.
Á kolmunnaveiðum. Mynd úr safni.

Veðrið sjaldan gott

Góðar fréttir hafa borist af aflabrögðum á kolmunnaveiðunum vestur af Írlandi en Guðlaugur segist bara vona að það verði ekki um seinan að fá góðan afla.

„Síðasti dagurinn, sem gaf íslensku skipunum einhvern afla í fyrra á alþjóðlega svæðinu, var 18. mars. Eftir það gekk kolmunninn norður í skosku lögsöguna. Vandinn við veiðar á þessu hafsvæði er jafnan veðrið. Það er sjaldan gott. Það er erfitt að eiga við stór hol í snarvitlausu veðri en vonandi verður það skaplegt að þessu sinni,“ segir Guðlaugur Jónsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Ver AK 38 Grásleppunet
Grásleppa 934 kg
Samtals 934 kg
24.4.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 12.806 kg
Ýsa 1.274 kg
Steinbítur 114 kg
Ufsi 47 kg
Keila 13 kg
Karfi 2 kg
Samtals 14.256 kg
24.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.701 kg
Ýsa 13 kg
Keila 3 kg
Samtals 1.717 kg
24.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 2.661 kg
Karfi 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.681 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Ver AK 38 Grásleppunet
Grásleppa 934 kg
Samtals 934 kg
24.4.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 12.806 kg
Ýsa 1.274 kg
Steinbítur 114 kg
Ufsi 47 kg
Keila 13 kg
Karfi 2 kg
Samtals 14.256 kg
24.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.701 kg
Ýsa 13 kg
Keila 3 kg
Samtals 1.717 kg
24.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 2.661 kg
Karfi 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.681 kg

Skoða allar landanir »