Vörur íslenska matvælaframleiðandans ORA hafa verið tilnefndar sem vörur ársins á sjávarútvegssýningunni í Brussel, sem fram fer dagana 24.-26. apríl. Þá er vörulína fyrirtækisins í heild sinni tilnefnd til verðlauna sem vörulína ársins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ORA, en um er að ræða vörurnar „Creamy masago bites“, sem útlagst gæti á íslensku sem rjómakenndir loðnuhrognabitar, „Crunchy caviar bites“, það er stökka kavíarbita, og „Rich langoustine soup“, eða ljúffenga humarsúpu.
Sjávarútvegssýningin í Brussel er sú allra stærsta í heiminum á þessu sviði og stendur árlega fyrir vali á bestu nýju vörum ársins. Allar vörurnar sem tilnefndar eru verða sérstaklega prófaðar og metnar af fagmönnum og innkaupafólki úr smásölu og stóreldhúsageiranum, auk þess sem sérfræðingar í nýjum matvörum leggja mat sitt á þær.
Tilkynnt verður hver vara ársins er við hátíðlega athöfn á þriðjudagskvöldið í sýningarhöllinni í Brussel.
Áður hefur ORA unnið til verðlauna á sjávarútvegssýningunni í Boston.
Verðlaunin voru veitt fyrir áðurnefnda loðnuhrognabita, en rétturinn samanstendur af masago, sem unnið er úr íslenskum loðnuhrognum, laxamús úr íslenskum eldislaxi, og sesam-brauðkexi.
„Réttirnir eru nánast tilbúnir í pakkningunum og krefjast sáraeinfaldrar eldamennsku og fárra mínútna,“ sagði Jóhannes Egilsson, útflutningsstjóri ORA, í umfjöllun um verðlaunin í Morgunblaðinu í mars.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |