„Eins og legið sé við bryggju“

Blængur kemur heim fyrir Sjómannadaginn.
Blængur kemur heim fyrir Sjómannadaginn. Mynd/Hákon Ernuson

Veiðin hefur farið tiltölulega hægt af stað hjá frystitogaranum Blængi NK, sem fór til veiða í Barentshafi 28. apríl síðastliðinn. Segir Theodór Haraldsson skipstjóri að fyrstu dagana hafi fengist um það bil tonn á klukkutímann.

Að undanförnu hefur veiðin farið vaxandi en fiskurinn heldur sig á litlum blettum. Þegar hann finnst hópast einir tuttugu togarar að og þá dregur fljótt úr veiðinni, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar, en auk Blængs er Kleifaberg þarna að veiðum ásamt þremur færeyskum skipum. Önnur skip eru rússnesk.

Þætti góður afli á Íslandsmiðum

Góð veiði var á sunnudag og mánudag og á mánudaginn fengust 70-80 tonn þannig að í fyrrinótt var skipið á reki á meðan aflinn var unninn. Vinnslan hefur gengið mjög vel og fóru 65 tonn af blönduðum afla í gegnum hana á mánudag. Í gær datt veiðin niður á ný og nú eru skipin að leita. Theodór segir að nú séu um 600 tonn komin um borð í skipið og uppistaða aflans sé þorskur.

„Það er staðreynd að við vonuðumst eftir heldur meiri afla, en hitt er svo annað mál að þetta þætti góður afli á Íslandsmiðum. Það hefur venjulega verið meiri afli í Barentshafinu um þetta leyti árs en af einhverjum ástæðum er fiskgengd ekki jafn mikil núna. Hér hefur verið blíðuveður þennan hálfa mánuð sem við höfum verið að veiðum. Skipið hreyfist nánast ekki, það er eins og legið sé við bryggju,“ segir Theodór.

Blængur mun koma í heimahöfn fyrir Sjómannadaginn, sem er 3. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »