Aldrei landað jafnmiklum afla

Gullver NS hélt aftur til veiða á fimmtudag.
Gullver NS hélt aftur til veiða á fimmtudag. Ljósmynd/Ómar Bogason

„Staðreyndin er sú að þó að skipið sé gamalt þá er það ótrúlega gott – það hefur alltaf fiskast vel á það og það er ótrúlega gott í sjó. Þennan góða árangur má einnig þakka veiðarfærunum og frábærum körlum um borð.“

Þetta segir Þórhallur Jónsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Gullveri, sem landaði 102 tonnum á Seyðisfirði á þriðjudag í síðustu viku og náði þar með fimm þúsund tonna markinu á þessu fiskveiðiári.

Rúnar L. Gunnarsson skipstjóri sker fimm þúsund tonna tertuna, sem …
Rúnar L. Gunnarsson skipstjóri sker fimm þúsund tonna tertuna, sem vó þó ekki svo mikið. Ljósmynd/Ómar Bogason

Útgerð Gullvers gengið afar vel

Af þessu tilefni var efnt til veislu um borð í togaranum og gæddu menn sér á dýrindistertu í borðsalnum, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Skipið hefur aldrei fært á land jafnmikinn afla á einu ári, en næstmesti ársaflinn var 4.400 tonn á árinu 2004.

Útgerð Gullvers er sögð hafa gengið afar vel að undanförnu, en skipstjórar eru þeir Rúnar L. Gunnarsson og Þórhallur Jónsson. Jónas Jónsson var skipstjóri fyrstu fjóra mánuði fiskveiðiársins en Rúnar tók við af honum.

„Allir ánægðir með árangurinn“

Þórhallur segir að búið sé að ganga afar vel á Gullver að undanförnu.

„Síðustu ár höfum við einnig verið tiltölulega frjálsir varðandi það hvað við veiðum. Áður var það ekki svo,“ segir Þórhallur og Rúnar tekur undir.

„Það hefur gengið afar vel hjá okkur að undanförnu. Auðvitað skýrist það fyrst og fremst af því að við höfum haft nægan kvóta og skipið er afar vel nýtt. Megnið af fiskveiðiárinu höfum við veitt á okkar hefðbundnu miðum út af Suðausturlandi en við fórum einnig fjóra túra á Selvogsbanka. Hér um borð eru auðvitað allir ánægðir með árangurinn,“ segir Rúnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »