„Við byrjuðum að dæla á þriðjudaginn og erum að dýpka fyrir utan höfnina í innsiglingunni. Síðan erum við líka að dýpka snúningssvæðið sem ætlað er fyrir flutningaskip, til dæmis þannig þau geti snúið í höfninni í stað þess að bakka inn,“ segir Dagur Þór Baldvinsson, yfirhafnarvörður hjá Skagafjarðarhöfnum, en dæluskipið Galilei 2000 frá Belgíu dælir þessa dagana úr höfninni.
Dýpkað verður í -8,5 metra á báðum svæðum og um 65.500 rúmmetrum af efni dælt upp. Verða um 15.000 rúmmetrar af því notaðir í landfyllingu í höfninni en restinni verður fargað á áður notuðum förgunarstað á hafi úti. Áætlað er að verkið taki fimm daga.
„Það má ekkert bregða út af eins og þetta er núna og þetta verður mikill munur fyrir fyrirtæki eins og Eimskip og Samskip sem koma hingað með vörur hálfsmánaðarlega,“ segir Dagur Þór. „Við viljum vera öruggari með siglinguna. Síðan býður þetta upp á þann möguleika fyrir okkur að taka stærri skip, skipin eru líka alltaf að stækka,“ segir hann.
Aðspurður nefnir Dagur að dýpri höfn auki einnig möguleika til að taka á móti skemmtiferðaskipum. „Þótt aðallega sé verið að hugsa þetta fyrir flutningaskipin eykur þetta möguleikann á því líka,“ segir hann.
Galilei 2000 er Íslendingum kunnugt skip, en það kom til landsins árið 2016 og hefur verið við dýpkun í Landeyjahöfn hingað til.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.4.24 | 501,21 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.4.24 | 634,24 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.4.24 | 371,38 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.4.24 | 140,96 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.4.24 | 197,72 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.4.24 | 265,14 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.4.24 | 172,97 kr/kg |
Litli karfi | 18.4.24 | 70,38 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 8.181 kg |
Þorskur | 404 kg |
Skarkoli | 88 kg |
Ýsa | 78 kg |
Samtals | 8.751 kg |
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 3.179 kg |
Þorskur | 460 kg |
Skarkoli | 160 kg |
Ýsa | 94 kg |
Samtals | 3.893 kg |
18.4.24 Sæli BA 333 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.581 kg |
Ýsa | 18 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Samtals | 1.616 kg |
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 923 kg |
Ýsa | 369 kg |
Þorskur | 199 kg |
Hlýri | 78 kg |
Skarkoli | 56 kg |
Langa | 25 kg |
Ufsi | 18 kg |
Samtals | 1.668 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.4.24 | 501,21 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.4.24 | 634,24 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.4.24 | 371,38 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.4.24 | 140,96 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.4.24 | 197,72 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.4.24 | 265,14 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.4.24 | 172,97 kr/kg |
Litli karfi | 18.4.24 | 70,38 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 8.181 kg |
Þorskur | 404 kg |
Skarkoli | 88 kg |
Ýsa | 78 kg |
Samtals | 8.751 kg |
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 3.179 kg |
Þorskur | 460 kg |
Skarkoli | 160 kg |
Ýsa | 94 kg |
Samtals | 3.893 kg |
18.4.24 Sæli BA 333 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.581 kg |
Ýsa | 18 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Samtals | 1.616 kg |
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 923 kg |
Ýsa | 369 kg |
Þorskur | 199 kg |
Hlýri | 78 kg |
Skarkoli | 56 kg |
Langa | 25 kg |
Ufsi | 18 kg |
Samtals | 1.668 kg |