„Þetta er náttúrulega ógurlega stórt“

Guðmundur Gísli Geirdal segir stóran borgarísjaka hafa strandað á 100 …
Guðmundur Gísli Geirdal segir stóran borgarísjaka hafa strandað á 100 metra dýpi á þeim stað þar sem hann segist fá stærsta fiskinn. Ljósmynd/Aðsend

Stór borgarísjaki er nú fastur á besta blettinum, segir Guðmundur Gísli Geirdal á Gísla KÓ-10 í samtali við mbl.is. Borgarísjakinn er við Hornbanka um 40 mílur norðaustur af Horni og hefur hann strandað á um það bil 100 metra dýpi. „Þetta er náttúrulega ógurlega stórt. Ég fór alveg að honum og það var að brotna aðeins úr honum,“ segir Guðmundur.

Hér sést Glær KÓ-9 við borgarísjakann.
Hér sést Glær KÓ-9 við borgarísjakann. Ljósmynd/Aðsend

„Hann er þarna á bletti þar sem ég hef verið að veiða voðalega stóran fisk og ég fór alveg upp að honum og náði þar í svolítið mikið af þessum stóra. Fékk alveg fjögur kör af fiski sem var allur yfir 20 kíló. Það er náttúrulega bara ævintýri,“ segir hann.

Guðmundur Gísli Geirdal.
Guðmundur Gísli Geirdal. Ljósmynd/Aðsend

Guðmundur hefur verið ásamt syni sínum Axel Erni Guðmundssyni, sem er á Glæ KÓ-9, að veiða þorsk á svæðinu í kringum ísjakann síðustu daga. „Þetta er voða gaman að vera svona saman að þessu,“ segir Guðmundur.

Ljósmynd/Aðsend

Veðurstofan tilkynnir annan ísjaka

Nokkuð stór borgarísjaki með tvo turna er nú staddur um 6 kílómetra norðvestur af Reykjaneshyrnu, um 18 kílómetra frá landi og hefur færst nokkuð vestar í dag samkvæmt tilkynningu Veðurstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »