Fyrirtækjum „haldið í spennitreyju“

Laxeldi í sjókvíum.
Laxeldi í sjókvíum. mbl.is/RAX

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Fjarðabyggð hefur samþykkt ályktun þar sem það lýsir yfir undrun sinni á að ekki hafi fengist heimildir fyrir auknu laxeldi í Reyðarfirði eins og burðarþolsmat segir til um og unnið hefur verið að undanfarin ár.

Ályktunin var samþykkt á fundi fulltrúaráðsins í gærkvöldi, að því er segir í tilkynningu. 

Þar segir að fyrirhuguð 10 þúsund tonna viðbótarframleiðsla á laxi í Reyðarfirði, sem ætti að taka tvö ár, hafi verið til meðferðar í stjórnsýslunni frá 2002.

„Það er óásættanlegt að fyrirtækjum sem vilja fjárfesta í atvinnuuppbyggingu sé haldið í spennitreyju stjórnkerfisins,“ segir í ályktuninni.

Skorað er á Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra að höggva á hnútinn varðandi umsóknarferlið.

Ályktunin í heild sinni:

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Fjarðabyggð lýsir yfir undrun sinni á að ekki hafi fengist heimildir fyrir auknu laxeldi í Reyðarfirði eins og burðarþolsmat segir til um og unnið hefur verið að á undanförnum árum. Fyrirhuguð 10.000 tonna viðbótarframleiðsla á laxi í Reyðarfirði sem ætti að taka undir eðlilegum kringumstæðum um það bil tvö ár hefur verið til meðferðar í stjórnsýslunni frá árinu 2012. Ástæður tafanna verða ekki raktar til framkvæmdaraðila heldur síbreytilegs regluverks, afturvirkni og yfirálags á stofnunum ríkisins.   

Það er óásættanlegt að fyrirtækjum sem vilja fjárfesta í atvinnuuppbyggingu sé haldið í spennitreyju stjórnkerfisins. Fyrirhugaðar framkvæmdir hafa ítrekað verið settar í uppnám og nú síðast á afar ómálefnalegum sjónarmiðum þar sem þekkt hafbeitará er skilgreind ranglega sem laxveiðiá þrátt fyrir að ritaðar heimildir hundruð ára aftur í tímann sýni með berum hætti að engan laxastofn hefur nokkru sinni verið að finna í ánni.

Fiskeldi getur orðið ein af burðarstoðum atvinnulífsins í Fjarðabyggð og mikilvægt að stjórnvöld skapi heilbrigt og hvetjandi umhverfi til uppbyggingar í greininni. Öflugt atvinnulíf er forsenda framfara og undirstaða velferðarkerfisins. Allar atvinnugreinar þurfa starfsumhverfi sem er skýrt og stöðugt til langs tíma. Mikilvægt er að einfalda opinbert eftirlit og tryggja að það hamli ekki framþróun.

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Fjarðabyggð skorar á Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra að höggva á þann hnút sem umsóknarferlið er í innan íslenska stjórnkerfisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 1.663 kg
Ýsa 48 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.720 kg
23.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 3.165 kg
Ýsa 1.316 kg
Steinbítur 180 kg
Karfi 29 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 4.693 kg
23.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.739 kg
Ýsa 40 kg
Karfi 37 kg
Samtals 1.816 kg
23.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 4.450 kg
Samtals 4.450 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 1.663 kg
Ýsa 48 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.720 kg
23.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 3.165 kg
Ýsa 1.316 kg
Steinbítur 180 kg
Karfi 29 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 4.693 kg
23.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.739 kg
Ýsa 40 kg
Karfi 37 kg
Samtals 1.816 kg
23.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 4.450 kg
Samtals 4.450 kg

Skoða allar landanir »