Halda í góðar hefðir

Nýtt skip Samherja leysir núverandi Vilhelm Þorsteinsson EA 11 af …
Nýtt skip Samherja leysir núverandi Vilhelm Þorsteinsson EA 11 af hólmi og verður vel búið í alla staði.

Samningar Samherja um smíði á nýju uppsjávarskipi hjá Karstensens-skipasmíðastöðinni í Skagen í Danmörku voru fullfrágengnir 4. september. Þann dag hefðu tvíburabræðurnir Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir orðið 90 ára gamlir, en þeir eru feður Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og Kristjáns Vilhelmssonar, framkvæmdastjóra útgerðarsviðs. Baldvin lést 21. desember 1991 og Vilhelm 22. desember 1993.

Bræðurnir Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir í Hlíðarfjalli.
Bræðurnir Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir í Hlíðarfjalli. Ljósmynd/Af heimasíðu Samherja

Skipið á að afhenda um mitt sumar 2020 og verður það vel búið í alla staði, bæði hvað varðar veiðar og meðferð á afla, sem og vinnuaðstöðu og aðbúnað áhafnar, segir á heimasíðu Samherja. Burðargeta verður um þrjú þúsund tonn af kældum afurðum. Nýsmíðin á að leysa af hólmi núverandi Vilhelm Þorsteinsson EA 11 sem kom nýr til landsins fyrir 18 árum.

Afmælisdagur þeirra bræðra, 4. september, hefur áður tengst stórviðburðum í sögu fyrirtækisins. Hinn 4. september árið 1992 var nýsmíði Samherja, Baldvin Þorsteinssyni EA 10, gefið nafn og 3. september árið 2000 var núverandi Vilhelm Þorsteinssyni EA 11 gefið nafn. Ástæðan fyrir því að 3. september varð fyrir valinu var sú að 4. september bar upp á mánudag.

Mánudagar ekki heppilegir

„Hjátrú hefur lengi fylgt lífi sjómannsins þar sem haldið er í hefðirnar til að reyna að tryggja farsæla heimkomu og góðan afla og voru þeir bræður engin undantekning. Á tímabili þegar Baldvin starfaði sem skipstjóri þurfti hann iðulega að fara í ákveðna peysu áður en nótinni var kastað en peysuna hafði hann erft eftir mág sinn, Alfreð Finnbogason, hinn mikla aflaskipstjóra.

Samherji heldur í góðar hefðir líkt og bræðurnir Vilhelm og Baldvin gerðu. Til að mynda skulu skip ekki fara til veiða á nýju ári á mánudegi né nýr starfsmaður hefja störf. Það er því engin tilviljun að gengið var frá samningum um smíði nýs skips á þessum degi 4. september,“ segir á heimasíðunni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »