Stjórnarformaður Fréttablaðsins er einnig lögmaður meirihlutaeigenda Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hf. og sömuleiðis varaformaður stjórnar fyrirtækisins. Þetta segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda og eigandi Brims.
Í tilkynningu frá Guðmundi, sem send er út í tilefni fréttar Fréttablaðsins um athugun Samkeppniseftirlitsins á kaupum Brims hf. á hlutabréfum í HB Granda hf., segir hann að eftirlitið hafi haft kaupin í athugun og hafi sent félögunum erindi þess efnis í júlí.
„Þar kemur fram að Samkeppniseftirlitið skoðar fjögur atriði. Í fyrsta lagi hvort tilkynningarskyldur samruni hafi átt sér stað þegar Brim hf. eignaðist þann 4. maí 34% hlut í HB Granda. Það er enn í skoðun,“ segir í tilkynningu Guðmundar.
„Í öðru lagi hvort það standist 10. gr. samkeppnislaga að aðaleigandi Brims hf. sé forstjóri HB Granda. Það er enn í skoðun.
Í þriðja lagi hvort stjórnarseta aðaleiganda Brims hf. í stjórn Vinnslustöðvarinnar brjóti gegn 10. gr. samkeppnislaga. Það er rangt að Guðmundur Kristjánsson hafi í vor verið í stjórn Vinnslustöðvarinnar og þarfnast því ekki frekari skoðunar.“
Bent er á að í fjórða lagi sé athugað hvort tilkynningaskyldur samruni hafi átt sér stað þegar Brim hf. keypti allt hlutafé í Ögurvík árið 2016.
„Samskipti áttu sér stað við Samkeppniseftirlitið á þeim tíma og var það sameiginleg niðurstaða þá að þessi viðskipti væru ekki tilkynningarskyld og er það atriði ekki lengur til skoðunar. Mál þetta var til umfjöllunar í fjölmiðlum í byrjun júlí á þessu ári og þá sagði Guðmundur í viðtali við Morgunblaðið að eðlilegt væri að eftirlitsstofnanir væru að fylgjast með viðskiptalífinu og er hann enn þeirrar skoðunar,“ segir í tilkynningunni.
Að lokum segir að vegna umræddrar forsíðufréttar Fréttablaðsins megi geta þess, að stjórnarformaður Fréttablaðsins sé einnig lögmaður meirihlutaeigenda Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hf. og varaformaður stjórnar fyrirtækisins, en maðurinn sem um ræðir er Einar Þór Sverrisson.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 332,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 217,26 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 221,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 234,41 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 332,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 217,26 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 221,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 234,41 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |