„Við fórum bara hérna út í Seyðisfjarðardýpið og tókum tvö stutt hol en leituðum ekkert víðar. Á landleiðinni sáum við svo töluverða síld hérna alveg upp við land,“ segir Gísli Runólfsson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK. Bætir hann við að síldin hafi verið um 6-8 mílur út af Norðfjarðarhorni.
Skipið kom í gærmorgun með 460 tonn af norsk-íslenskri síld til Neskaupstaðar og hófst um leið vinnsla á henni í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Gísli segir að auðvelt hafi reynst að sækja aflann.
„Ég held að þetta líti bara ágætlega út. Síldin sem við fengum er stór og falleg og af allra bestu gerð. Hún er algerlega átulaus og meðalþyngdin reyndist vera um 400 gr. Ég held að þessi síld hljóti að henta afar vel í vinnsluna.“
Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, tekur undir með Gísla. Hann segir að síldin sé mjög góð og fín og hún sé öll flökuð. „Þessi síld hentar afar vel í vinnsluna og hún á eftir að verða enn betri,“ segir Jón Gunnar.
Nú er bræla á síldarmiðunum og bæði Börkur NK og Bjarni Ólafsson liggja í höfn eins og er. Beitir NK er hins vegar væntanlegur úr Smugunni með um 1.100 tonn af makríl en megnið af aflanum fékkst í gær.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |