Fagna aukinni umferð aðkomutogara

Björgúlfur við komuna til heimahafnar í fyrsta sinn á síðasta …
Björgúlfur við komuna til heimahafnar í fyrsta sinn á síðasta ári. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Aðkomutogarar í Neskaupstað hafa landað þar tæplega 1.700 tonnum í sumar. Hafa skipin verið að veiðum úti fyrir Austfjörðum og hagkvæmara reynst að landa aflanum þar eystra. „Auðvitað fögnum við þessari auknu umferð skipa um hafnirnar, hún er afar jákvæð,“ segir Hákon Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna.

Greint er frá þessu á vef Síldarvinnslunnar, en um er að ræða togarana Björgúlf EA og Hjalteyrina EA frá Samherja, auk Kaldbaks EA sem gerður er út af Útgerðarfélagi Akureyringa. 

Áður hafa 200 mílur fjallað um landanir Kaldbaks EA, togara ÚA, sem reynst hafa Seyðisfjarðarhöfn drjúgar.

Fram kemur á vef útgerðarinnar að Björgúlfur EA hafi landað fjórum sinnum í Neskaupstað í sumar, samtals um 540 tonnum. Hjalteyrin EA hafi þá landað þar alls sjö sinnum, samtals 545 tonnum. Þá sé Kaldbakur EA nú að landa í fjórða sinn og afli hans samtals um 580 tonn.

Að auki hafi Anna EA landað grálúðu í Neskaupstað, einkum í byrjun árs og í sumar. Landanir hennar þar séu tólf hingað til og heildarafli um 1.030 tonn.

Bent er á að fyrir liggi að þessar landanir skipti hafnarsjóð Fjarðabyggðar miklu máli og segir Hákon þær afar jákvæðar.

„Þessar landanir hafa aukist mikið frá fyrri árum og þær hafa jákvæð áhrif á tekjur hafnarsjóðs, bæði tekjur í formi hafnargjalda og aflagjalda. Ekki má heldur gleyma því að landanirnar eru mikilvægar fyrir fyrirtæki á svæðinu. Ég vil til dæmis í því sambandi nefna fyrirtæki sem sinna löndunarþjónustu og flutningafyrirtæki,“ segir hann og kveðst fagna aukinni umferð um hafnirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »