Leyfi til laxeldis felld úr gildi

Frá laxeldi í Patreksfirði. Mynd úr safni.
Frá laxeldi í Patreksfirði. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur í tveimur úrskurðum fellt úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um veita Fjarðarlaxi ehf. og Arctic Sea Farm rekstrarleyfi fyrir 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði.

Niðurstaða nefndarinnar byggir á að umhverfismatsskýrsla fyrirtækjanna og álit Skipulagsstofnunar á skýrslunni geti ekki verið lögmætur grundvöllur fyrir ákvörðun um veitingu leyfa til framkvæmda.

Taldi nefndin að Matvælastofnun hefði borið að tryggja að málið væri nægilega upplýst, m.a. með því að gæta að því að lögbundið álit Skipulagsstofnunar hafi verið nægilega traustur grundvöllur fyrir leyfisveitingu.

Nefndin taldi að svo hafi ekki verið þar sem tefla hefði þurft fram fleiri en einum valkosti við mat á umhverfisáhrifum, enda sé nauðsynlegt að fá fram samanburð umhverfisáhrifa fleiri kosta sem lögbundin krafa er gerð um, allt í þeim tilgangi að leyfisveitandi geti tekið upplýsta afstöðu að rannsökuðu máli til þess að meta hvort eða með hvaða hætti hægt sé að leyfa framkvæmd þannig að skilyrði laga séu uppfyllt.

Þar sem ekki hafi verið sýnt fram á í mati á umhverfisáhrifum að enginn annar mögulegur framkvæmdakostur hafi getað komið til greina verði að telja það verulegan ágalla á matinu að engum öðrum kosti hafi verið lýst, að öðru leyti en því að vísað væri til þess að núllkostur hefði engin áhrif í för með sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 447,00 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 313,45 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 153,68 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,70 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 447,00 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 313,45 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 153,68 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,70 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »