Helgi Bjarnason
„Þetta er flókið mál og mér finnst kerfið hafa klikkað. Kerfið gerir ekki ráð fyrir því að það er fólk fyrir vestan sem hefur lífsviðurværi sitt af þessari starfsemi. Um 25% fjölskyldna á sunnanverðum Vestfjörðum hafa beina afkomu af fiskeldi,“ segir Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri hjá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish. Starfs- og rekstrarleyfi fyrirtækisins vegna áformaðs laxeldis í Patreks- og Tálknafirði voru felld úr gildi með úrskurðum úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í síðustu viku.
Sigurður nefnir sem dæmi um óvissuna sem uppi er vegna úrskurðanna að kennari úr grunnskólanum á Tálknafirði hafi haft samband við sig í gær til að fá útskýringar á stöðunni. Ástæðan sé sú að nemendurnir viti ekki fyrir víst hvort þeir verða áfram í skólanum.
„Mér finnst þetta lýsa stöðunni vel. Það skilur enginn hvernig hægt er að kippa í burtu leyfi fyrir starfsemi sem hefur verið stunduð í næstum því heilt ár. Fæstir trúa því að slíkt geti gerst í réttarríki. Þetta mál hefur vonandi vakið fleiri en mig til vitundar um það hvort við búum í samfélagi þar sem kerfið er haft ofar fólkinu og samfélögum þess,“ segir Sigurður.
Hann segir að fyrirtækin muni bera ógildingu rekstrar- og starfsleyfanna undir dómstóla. Hann er þrátt fyrir allt bjartsýnn á að lausn finnist í kerfinu. „Það erfiða í þessu er að við erum undir sama hatti og starfsmenn okkar og samfélagið allt á Vestfjörðum. Við þurfum að halda niðri í okkur andanum og bíða eftir næstu fréttum. Þannig er staðan einmitt núna,“ segir Sigurður Pétursson.
Ítarlegra viðtal við Sigurð má finna í Morgunblaðinu í dag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.4.24 | 477,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.4.24 | 568,87 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.4.24 | 324,35 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.4.24 | 266,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.4.24 | 217,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.4.24 | 257,51 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.4.24 | 163,22 kr/kg |
Litli karfi | 16.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
17.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.956 kg |
Þorskur | 404 kg |
Samtals | 5.360 kg |
17.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.474 kg |
Þorskur | 222 kg |
Skarkoli | 27 kg |
Rauðmagi | 17 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 2.744 kg |
17.4.24 Garri BA 90 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 16 kg |
Samtals | 16 kg |
17.4.24 Skúli ST 75 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 2.640 kg |
Þorskur | 2.364 kg |
Steinbítur | 163 kg |
Karfi | 21 kg |
Keila | 14 kg |
Ufsi | 11 kg |
Samtals | 5.213 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.4.24 | 477,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.4.24 | 568,87 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.4.24 | 324,35 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.4.24 | 266,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.4.24 | 217,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.4.24 | 257,51 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.4.24 | 163,22 kr/kg |
Litli karfi | 16.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
17.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.956 kg |
Þorskur | 404 kg |
Samtals | 5.360 kg |
17.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.474 kg |
Þorskur | 222 kg |
Skarkoli | 27 kg |
Rauðmagi | 17 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 2.744 kg |
17.4.24 Garri BA 90 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 16 kg |
Samtals | 16 kg |
17.4.24 Skúli ST 75 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 2.640 kg |
Þorskur | 2.364 kg |
Steinbítur | 163 kg |
Karfi | 21 kg |
Keila | 14 kg |
Ufsi | 11 kg |
Samtals | 5.213 kg |