Furða sig á lagasetningunni

Sambandið lýsir furðu sinni á því að hafa á engu …
Sambandið lýsir furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að hafa umsögn um umrædda lagasetningu. mbl.is/Golli

Landssamband veiðifélaga lýsir yfir vonbrigðum með þá niðurstöðu Alþingis að breyta fiskeldislögum þannig að opnað sé á möguleika ráðherra til að gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða til allt að 20 mánaða.

Þetta segir í tilkynningu frá sambandinu, en frum­varp Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, um breyt­ing­ar á lög­um um fisk­eldi, var samþykkt á Alþingi á tólfta tím­an­um í gærkvöldi. Frum­varpið fel­ur í sér heim­ild til ráðherra til þess að gefa út rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða vegna fisk­eld­is.

Lýsir sambandið furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að hafa umsögn um umrædda lagasetningu.

Bendir á hugmyndir um tilraunaeldi 

„Af umræðum undanfarna daga verður að teljast líklegt að þessi heimild verði notuð til að draga úr áhrifum úrskurða sem eru umhverfinu í hag. Er málum virkilega þannig komið að sé nægjanlegum þrýstingi beitt víki reglur um umhverfisvernd?“

Sambandið bendir þá á að ekki séu liðnir nema nokkrir mánuðir, „síðan kynntar voru hugmyndir Hafrannsóknastofnunar um 3.000 tonna „tilraunaeldi“ í Ísafjarðardjúpi. Virðist það vera gert gagngert til að komast framhjá áhættumati um erfðamengun sem hafði í raun lokað fyrir eldi frjórra norskra laxa í Djúpinu.“

Unnendur náttúru verði sérstaklega á verði

Stuttu áður hafi álit Skipulagsstofnunar, sem lagst hafi gegn eldi frjórra laxa, verið dregið til baka eftir mikinn pólitískan þrýsting.

„Eftir „velheppnaða“ herferð Landssambands fiskeldisstöðva gegn úrskurði Úrskurðarnefndar auðlinda og skipulagsmála má búast við að eldi frjórra laxa í Djúpinu verði næsta markmið, ásamt frekari tilslökunum á lögum um fiskeldi.

Landssamband veiðifélaga hvetur unnendur íslenskrar náttúru til þess að vera sérstaklega á verði gagnvart frekari tilslökunum á reglum er varða umhverfisvernd. Einnig þeirri tilhneigingu, að sé nægum pólitískum þrýstingi beitt víki umhverfisverndin alltaf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 696 kg
Samtals 696 kg
20.4.24 Silver Crystal (LAD08) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 163.969 kg
Samtals 163.969 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 696 kg
Samtals 696 kg
20.4.24 Silver Crystal (LAD08) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 163.969 kg
Samtals 163.969 kg

Skoða allar landanir »