„Þetta er búið í bili“

Einar Hannes Harðarson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, á leið …
Einar Hannes Harðarson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, á leið með kjörkassa félagsins til talningar, meðan á verkfalli sjómanna stóð á síðasta ári. mbl.is/Eggert

Sameiningarviðræðum fimm sjómannafélaga, sem 200 mílur greindu frá fyrr í mánuðinum, hefur verið slitið. Þetta staðfestir Einar Hannes Harðarson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur.

„Við hefðum aldrei farið í sameiningu nema öll fimm félögin væru saman í þessu,“ segir Einar, en auk SVG er um að ræða Sjómannafélag Íslands, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjó­manna­fé­lag Hafn­ar­fjarðar og Sjó­manna­fé­lagið Jöt­un.

„Ég held við verðum bara að leyfa þessu máli innan Sjómannafélags Íslands að klárast áður en við tökum ákvörðun um framhaldið,“ segir hann og bætir við að hann ætli sér ekki að skipta sér af formannskjöri í öðru félagi.

Samræður félaganna segir hann hafa hafist skömmu eftir áramót, en formlegar viðræður með fundum hafi byrjað nú í haust. Sameining félaganna var enda sögð á lokametrunum í síðustu viku.

„Þetta gekk ágætlega þangað til þetta mál kom upp og nú er bara að bíða átekta og leyfa því að ganga yfir. Þetta er búið í bili.“

Einar vísar þar til deilna á milli stjórnar Sjómannafélags Íslands annars vegar og Heiðveigar Maríu Einarsdóttur hins vegar, en hún hefur tilkynnt framboð til formanns félagsins.

Heiðveig sagði vinnu­brögð stjórn­ar fé­lags­ins óboðleg með öllu í samtali við 200 mílur í gær. Finnur hún að lagabreytingum sem fram komu á vef félagsins um síðustu mánaðamót og segir hún að þær virðist að mestu leyti ekki eiga sér stoð í fundargerðum eða öðrum lögum félagsins.

Þar áður hafði stjórn Sjómannafélagsins lýst því yfir að hún harmaði ásakanir Heiðveigar í sinn garð, auk þess sem Jónas Garðarsson, formaður félagsins upplýsti í aðsendri grein í Morgunblaðinu að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri í komandi kosningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 472,36 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 334,19 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 216,32 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,09 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Ýsa 10.061 kg
Karfi 5.572 kg
Langa 958 kg
Samtals 16.591 kg
17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 472,36 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 334,19 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 216,32 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,09 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Ýsa 10.061 kg
Karfi 5.572 kg
Langa 958 kg
Samtals 16.591 kg
17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg

Skoða allar landanir »