VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna, hefur sent frá sér tilkynningu vegna fréttar sem birtist í gær um úrskurð úrskurðarnefndar um fiskverð vegna verðs á uppsjávarskipum Ísfélagsins í Vestmannaeyjum.
„Í fréttinni [sem var birt í Fréttablaðinu] er réttilega sagt frá því að VM hafi raskað því fyrirkomulagi sem unnið hefur verið eftir. Það er skoðun VM að félagið reyni ávallt að styðja sína félagsmenn þegar ágreiningur kemur upp á milli launafólks og atvinnurekanda, enda er það hlutverk stéttarfélaga,“ segir í tilkynningunni.
„Það er ólíðandi að stéttarfélögum skuli vera haldið utan samninga eins og þeim sem fjallað er um í þessari frétt. Það sjá það allir sem vilja að leikurinn er ójafn þegar útgerðamenn hafa allar forsendur en sjómenn litlar sem engar til þess að semja um verð.“
Fram kemur að VM sé stolt af þeirri vegferð sem félagið fór í með félagsmönnum sínum í málinu. Það mun áfram hjálpa félagsmönnum sínum og leita allra leiða til þess.
„Það er rangt sem kom fram í fréttinni að slegið hafi verið á putta félagsins þó að vissulega hafi það verið reynt. Allt sem félagið gerði var innan ramma laganna og er það viðurkennt í úrskurðinum. Þó að VM hafi leitt þetta mál, þá var stuðningur annarra sjómannafélaga ómetanlegur og gott var að finna þá samstöðu sem náðist í þessu máli á meðal hagsmunasamtaka sjómanna.“
Þar er einnig minnst á að í fréttinni sé rætt við Stefán B. Friðriksson framkvæmdastjóra Ísfélagsins í Vestmannaeyjum sem gagnrýni að stéttarfélögin standi á bakvið sína félagsmenn en Stefán er einnig varamaður í úrskurðarnefnd um fiskverð fyrir SFS. „Velta má fyrir sér hvort það séu ekki óheppileg tengsl að framkvæmdastjóri eins fyrirtækis hafa þannig aðgang að fiskverðum hjá öllum samkeppnisaðilum sínum,“ segir í tilkynningunni.