Fyrirtækið Valka hefur samið við Murman Seafood um hönnun og uppsetningu á nýrri hátæknifiskvinnslu í borginni Kola í Múrmansk í Rússlandi. Er fiskvinnslan sú fyrsta sinnar tegundar í landinu og verður tæknilegasta bolfiskvinnslan í Rússlandi að uppsetningu lokinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Völku.
Valka mun hafa yfirumsjón með verkefninu, en fleiri tækjaframleiðendur koma þó að uppsetningu vinnslunnar, og hljóðar heildarsamningurinn upp á 1,3 milljarða króna.
„Það hefur verið mjög ánægjulegt að vinna að undirbúningi að þessu metnaðarfulla verkefni með Murman Seafood. Þetta er fyrsta verkefni þessarar tegundar hjá Völku og stefnum við að því að þróa starfsemi okkar enn frekar í þessa átt,“ er haft eftir Helga Hjálmarssyni, framkvæmdastjóra Völku.
Murman Seafood gerir út sex frystitogara og er meðal þeirra fyrirtækja sem fékk úthlutað viðbótarkvóta hjá rússneskum yfirvöldum gegn því að fjárfesta í landvinnslu. Vinnsluhúsið verður byggt frá grunni og verður búið nýjustu tækni og tækjum, en þeirra á meðal eru sjálfvirkar beina- og bitaskurðavélar frá Völku. Mun nýja vinnslukerfið gera fyrirtækinu kleift að hámarka verðmæti þeirra 50 tonna af hráefni sem áætlað er að vinna í nýju vinnslunni á degi hverjum, en fram að þessu hefur hráefnið að mestu leyti verið selt heilfryst.
Verkefnið hefur verið í undirbúningi í rúmlega eitt ár og er gangsetning áætluð síðla sumars 2019.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 558,73 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 332,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 217,26 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 221,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 234,41 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 208,37 kr/kg |
19.3.24 Málmey SK 1 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 52.598 kg |
Samtals | 52.598 kg |
19.3.24 Haförn ÞH 26 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 3.518 kg |
Steinbítur | 614 kg |
Ýsa | 575 kg |
Skarkoli | 497 kg |
Sandkoli | 297 kg |
Ufsi | 95 kg |
Samtals | 5.596 kg |
19.3.24 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 2.002 kg |
Þorskur | 523 kg |
Ýsa | 204 kg |
Langa | 19 kg |
Samtals | 2.748 kg |
19.3.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.715 kg |
Ýsa | 1.700 kg |
Steinbítur | 527 kg |
Langa | 117 kg |
Keila | 37 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 10.108 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 558,73 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 332,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 217,26 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 221,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 234,41 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 208,37 kr/kg |
19.3.24 Málmey SK 1 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 52.598 kg |
Samtals | 52.598 kg |
19.3.24 Haförn ÞH 26 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 3.518 kg |
Steinbítur | 614 kg |
Ýsa | 575 kg |
Skarkoli | 497 kg |
Sandkoli | 297 kg |
Ufsi | 95 kg |
Samtals | 5.596 kg |
19.3.24 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 2.002 kg |
Þorskur | 523 kg |
Ýsa | 204 kg |
Langa | 19 kg |
Samtals | 2.748 kg |
19.3.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.715 kg |
Ýsa | 1.700 kg |
Steinbítur | 527 kg |
Langa | 117 kg |
Keila | 37 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 10.108 kg |