Fiskeldisfyrirtækin fá undanþágu

Fiskeldiskví við Hlaðseyri í Patreksfirði.
Fiskeldiskví við Hlaðseyri í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur veitt fyrirtækjunum Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalaxi hf. tímabundna undanþágu frá kröfu um starfsleyfi, með skilyrðum. Arctic Sea Farm hf. er þar með veitt heimild til að framleiða 600 tonn árlega og Fjarðalaxi hf. 3.400 tonn árlega af laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu en í henni segir að undanþágurnar muni falla úr gildi í síðasta lagi 5. september á næsta ári.

Gert ráð fyrir umfangsminni starfsemi

Bent er á að ráðuneytið veiti undanþágurnar á grundvelli ákvæða laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.

Gert er um leið ráð fyrir mun umfangsminni starfsemi fyrirtækjanna en þau óskuðu eftir í beiðni sinni um undanþágu og sem starfsleyfi Umhverfisstofnunar tók til, en starfsleyfin voru felld úr gildi í október sl. með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Undanþágurnar bundnar skilyrðum

Tekið er fram að fyrirtækjunum sé gert skylt að fylgja þeim skilyrðum sem fram komi í fyrrgreindum starfsleyfum og þeim umhverfiskröfum sem komi fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar.

„Þá eru undanþágurnar bundnar þeim skilyrðum að fyrirtækin vinni með virkum hætti að því að bæta úr annmörkum á umhverfismati vegna framkvæmdanna og gera ráð fyrir að starfseminni sé haldið í lágmarki til að draga sem mest úr umhverfisáhrifum og mengun sem henni fylgir,“ segir í tilkynningunni.

Við afgreiðslu málsins hafi verið aflað umsagna frá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og Matvælastofnun, sem mælt hafi með því að fyrirtækjunum yrði veitt tímabundin undanþága frá starfsleyfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »