Framboði Heiðveigar Maríu hafnað

Frestur til að skila inn framboðum og meðmælalistum var til …
Frestur til að skila inn framboðum og meðmælalistum var til klukkan 12 á mánudag. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Mótframboði Heiðveigar Maríu Einarsdóttur til stjórnar í Sjómannafélagi Íslands gegn lista stjórnar félagsins, A-lista, var hafnað á fundi kjörstjórnar félagsins í gær.

Listi Heiðveigar Maríu, B-listi, var ekki talinn lögmætur vegna þess að einungis var lagður fram listi til stjórnar og varastjórnar félagsins, ásamt skrá yfir meðmælendur. Ekki bárust listar til stjórnar matsveinadeildar eða trúnaðarráðs, en samkvæmt lögum félagsins fara kosningar fram til tveggja stjórna, auk trúnaðarráðs á sama tíma og skal mótframboð til stjórnar í félaginu jafnframt leggja fram framboð til stjórnar matsveinadeildar.

Þá segir að frambjóðandi B-lista til formanns stjórnar félagsins sé hvorki félagsmaður í félaginu né uppfylli skilyrði um kjörgengi, þar sem hann hafði ekki greitt í félagið í þrjú ár.

Einnig var sett út á meðmælalista sem lagður var fram samhliða framboðslista B-listans, en við skoðun á honum kom í ljós að þrír þeirra 111 sem skrifað höfðu undir voru ekki félagsmenn í félaginu.

Frambjóðendur geti ekki verið meðmælendur

Auk þess voru allir frambjóðendur til stjórnar og varastjórnar í félaginu, alls 10, meðal meðmælenda. „Frambjóðendur til stjórnar og varastjórnar í félaginu geta ekki jafnframt verið meðmælendur með eigin framboði,“ segir í tilkynningunni.

Í c-lið 5. mgr. 16. gr. laga félagsins kemur fram að hafi aðeins einn framboðslisti borist til stjórnar, trúnaðarmannaráðs og matsveinadeildar séu þeir menn sem þar eru tilnefndir sjálfkjörnir í stjórn.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,71 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,04 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Mars BA 74 Handfæri
Þorskur 829 kg
Samtals 829 kg
24.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 1.213 kg
Þorskur 68 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.340 kg
24.4.24 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 2.543 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 2.576 kg
24.4.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.716 kg
Þorskur 157 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.877 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,71 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,04 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Mars BA 74 Handfæri
Þorskur 829 kg
Samtals 829 kg
24.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 1.213 kg
Þorskur 68 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.340 kg
24.4.24 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 2.543 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 2.576 kg
24.4.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.716 kg
Þorskur 157 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.877 kg

Skoða allar landanir »