„Óskiljanleg“ ákvörðun stjórnvalda

Bjarni Sæmundsson, skip Hafrannsóknastofnunar, sem lagt verður að óbreyttu í …
Bjarni Sæmundsson, skip Hafrannsóknastofnunar, sem lagt verður að óbreyttu í haust. mbl.is/Styrmir Kári

Óskiljanlegt er að stjórnvöld hyggist draga svo máttinn úr Hafrannsóknastofnun, að henni verði í raun meinað sinna þeim grundvallarrannsóknum sem sjósókn Íslendinga byggir á.

Þetta segir í sameiginlegri yfirlýsingu Sjómannasambands Íslands, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Félags skipstjórnarmanna og VM - Félags vélstjóra og málmtæknimanna, þar sem fjallað er um væntanlegan niðurskurð Hafrannsóknastofnunar vegna hagræðingarkröfu stjórnvalda.

Boðuð verulega skert fjárframlög

„Árangur sá er náðst hefur í fiskveiðistjórnun á Íslandsmiðum grundvallast á rannsóknum. Án þeirra myndu menn renna blint í sjóinn, í bókstaflegri merkingu. Margir stofnar við Ísland eru nýttir á sjálfbæran hátt. Stærri fiskistofnar leiða til þess að hægara verður að veiða fiskinn og veiðarnar verða umhverfisvænni. Víða um heim líta menn til reynslu Íslendinga af stjórn fiskveiða, sem byggst hefur á vísindalegri nálgun. Þar hefur Hafrannsóknastofnun verið í forystu- og lykilhlutverki og Íslendingar ættu að vera stoltir af framlagi hennar. Að hlúa að stofnuninni er því bæði nauðsyn og skylda,“ segir í yfirlýsingu félaganna.

„Nú hafa verið boðuð verulega skert fjárframlög til Hafrannsóknastofnunar. Það er óskiljanlegt að stjórnvöld hyggist draga svo máttinn úr stofnuninni að henni verði í raun meinað að sinna þeim grundvallarrannsóknum, sem sjósókn Íslendinga byggist á. Skerðing fjármuna vekur ekki síst furðu í ljósi þess að íslenskur sjávarútvegur í heild sinni greiðir tugi milljarða til hins opinbera á ári hverju. Veiðigjaldið, eitt og sér, nam hátt í 11,5 milljörðum króna í fyrra.“

Bent er á að lögum samkvæmt sé gjaldinu meðal annars ætlað að standa undir kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu.

„Það er miður að löggjafinn fylgi ekki þeirri reglu sem hann sjálfur hefur sett.“

Endurskoði niðurskurðinn hið fyrsta

Vakin er athygli á að á sérstökum hátíðarfundi Alþingis í sumar hafi verið samþykkt tillaga til þingsályktunar, um að láta smíða nýtt hafrannsóknaskip. Í greinargerð með ályktuninni segi eftirfarandi:

„Meginforsenda þess að Íslendingar geti tekist á við þær breytingar sem eiga sér nú stað á umhverfi hafsins og vistkerfi þess eru viðamiklar haf- og fiskirannsóknir, þ.m.t. reglulegar stofnmælingar á helstu nytjastofnum. Það er nauðsynlegt til að nýtingin sé sjálfbær og hún byggð á bestu fáanlegu þekkingu. Íslendingar þurfa að ráða yfir góðum og vel búnum rannsóknaskipum sem geta sinnt haf- og umhverfisrannsóknum, eru vel búin til bergmálsmælinga á uppsjávarstofnum, útbúin veiðarfærum til rannsókna á stofnum í upp-, mið- og botnsjó auk þess að geta rannsakað umhverfi með myndavélum og fjölgeislamæli. Þá eru rannsóknaskipin mikilvægur vettvangur kennslu og rannsókna fyrir háskólanema og til uppfræðslu á öðrum skólastigum.“

„Undir þetta skal tekið,“ segja félögin. „Það er krafa þeirra er undir þessa áskorun rita að stjórnvöld endurskoði hið fyrsta fyrirhugaðan niðurskurð á fjárframlagi til Hafrannsóknastofnunar. Sú ákvörðun er skammsýni. Það eru miklu meiri heildarhagsmunir fólgnir í því að styðja við og efla rannsóknir en að stefna þeim í voða. Þannig rísum við undir þeirri ábyrgð sem okkur er falin í umgengni við sjóinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »