„Það er fiskur hérna en veiðin hefur verið misjöfn, ekki síst vegna veðurs. Við erum komnir með rúmlega 1.000 tonn í fjórum holum. Við fengum 450 tonn í fyrsta holinu en svo komu tvö bræluhol sem gáfu ekki mikið. Við fengum síðan 300 tonn í síðasta holi og mér sýnist að veðurútlit sé gott næsta sólarhringinn eða svo.“
Þetta segir Geir Zoëga, skipstjóri á grænlenska skipinu Polar Amaroq, sem er að kolmunnaveiðum á hinu svonefnda gráa svæði, á milli Skotlands og Færeyja.
„Við erum beint suður af Færeyjum og hér eru auk okkar til dæmis Rússar, Hollendingar, Norðmenn og Færeyingar, en engir Íslendingar og það er svolítið sérstakt. Mér skilst að lítið sé að gerast í samningamálum Íslendinga og Færeyinga um gagnkvæm veiðiréttindi,“ er haft eftir Geir á vef Síldarvinnslunnar.
„Ég er ágætlega bjartsýnn hvað veiðihorfur í kolmunnanum varðar. Það er einna helst að veður geti sett strik í reikninginn, en það er ekki alltaf blíðan á þessum slóðum í janúar.“
Hið umrædda gráa svæði er hafsvæði á milli Færeyja og norðurstrandar Skotlands sem þjóðirnar deildu lengi um. Hinn 18. maí árið 1999 náðist hins vegar samkomulag þar sem landgrunninu undir hafsvæðinu var skipt samkvæmt breskri skilgreiningu á miðlínu sem þýddi í reynd að landgrunnsréttindin voru að mestu í höndum Breta. Hins vegar gerði samningurinn ráð fyrir að Færeyingar og Bretar hefðu jafnan fiskveiðirétt á svæðinu. Kolmunninn gengur um þetta svæði snemma árs og síðan aftur á vorin.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |