Síldarvinnslan hf. hefur ákveðið að hætta starfsemi fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík. Verksmiðjan hefur verið starfrækt frá árinu 1997.
Móttöku hráefnis verður hætt að lokinni loðnuvertíð, en fullkomin óvissa ríkir um hvort af þeirri vertíð verði, að því er segir í tilkynningu.
Áformin um lokun verksmiðjunnar voru kynnt starfsfólki í dag og voru þau einnig kynnt fulltrúum Reykjanesbæjar og öðrum hlutaðeigandi. Lokun verksmiðjunnar hefur í för með sér uppsögn sex starfsmanna en að auki hefur hún áhrif á ýmis verktaka- og þjónustufyrirtæki.
Síldarvinnslan vonast til að önnur uppbygging á Suðurnesjum komi í veg fyrir að lokun verksmiðjunnar hafi þar alvarleg áhrif.
Ástæða lokunarinnar er sú að rekstur verksmiðjunnar stendur ekki undir sér. Helsta ástæðan er síminnkandi hráefni til fiskimjölsverksmiðja, hækkandi kostnaður og auknar kröfur sem kalla á öflugar einingar og aukna hagræðingu. Uppistaða þess hráefnis sem borist hefur til verksmiðjunnar í Helguvík er loðna og hefur nýting verksmiðjunnar farið síminnkandi undanfarin ár. Óvissa um reksturinn hefur farið vaxandi vegna minnkandi loðnukvóta og mikillar óvissu um loðnuveiðar, að því er kemur fram í tilkynningunni.
Nú eru starfræktar 11 fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi en til dæmis í Danmörku eru þær þrjár og taka þær á móti 800 þúsund tonnum á ári til vinnslu.
Hafist verður handa við að ganga frá verksmiðjunni og svæðinu í Helguvík í samráði við hlutaðeigandi yfirvöld. Unnið verður að því að koma búnaði og fasteignum í sölu og notkun.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |