Víða um land flæddi sjór upp á hafnarbakka á stórstraumsflóði í gærmorgun. Einna mest urðu áhrifin á Flateyri þegar rafmagn sló út í bænum eftir að sjór flæddi inn í masturshús á bryggjunni en þar eru rafmagnstöflur fyrir hafnarsvæðið.
Háflóð var þegar sjórinn flæddi yfir höfnina. Ágústa Guðmundsdóttir, hafnarvörður á Flateyri, sagði við 200 mílur á mbl.is í gær að yfirleitt flæddi eitthvað yfir bryggjuna á háflóði en ekki eins langt og raunin varð í gærmorgun.
Starfsmönnum Orkubús Vestfjarða tókst að koma rafmagni á að nýju en höfnin var lengur án rafmagns en íbúarnir. Nokkurt tjón varð vegna þessa. Að sögn Ágústu reiknuðu rafvirkjar ekki með því að setja rafmagnstöflur aftur upp á sama stað. „Ég hugsa að þeir finni nýjan stað, en það mun taka einhverja daga,“ sagði Ágústa.
Í Stykkishólmshöfn var sjávarstaðan hærri en sést hefur þar í bæ í tugi ára, að sögn fréttaritara Morgunblaðsins. Hólmarar, komnir yfir miðjan aldur, höfðu ekki séð svo mikil flóð fyrr. Á flóðinu flæddi yfir veginn út í Súgandisey og var hann ekki ökufær nema stórum farartækjum. Háflóð var kl. 8.05 og mældist sjávarstaðan 5,10 metrar. Hrannar Pétursson hafnarvörður sagðist ekki muna eftir svona miklu flóði.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |