Stefanía Inga ráðin gæðastjóri Fisk Seafood

Stefanía Inga Sigurðardóttir, nýr gæðastjóri Fisk Seafood.
Stefanía Inga Sigurðardóttir, nýr gæðastjóri Fisk Seafood.

Stefanía Inga Sigurðardóttir hefur verið ráðin til starfa sem gæðastjóri hjá Fisk Seafood á Sauðárkróki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Vönduð gæðastjórnun í matvælaframleiðslu er gífurlega mikilvæg og getur skipt sköpum fyrir bæði orðspor vörunnar og verðmætasköpun,“ er haft eftir Stefaníu.

„Sem betur fer er regluverkið í kringum alla okkar starfsemi afar strangt og það verður mitt hlutverk að eftir því sé farið í einu og öllu auk þess að toppa kröfurnar eftir því sem unnt er. Þetta er teymisvinna þar sem nákvæmni skiptir öllu máli og ég hlakka til samstarfsins við það góða fólk sem stendur vaktina á hverjum stað.“

Starfað innan veggja Fisk Seafood frá 2013

Bent er á að í gæðahópi félagsins starfi sérstakir gæðaeftirlitsmenn í ólíkum rekstrareiningum, s.s. landvinnslunni á Sauðárkróki, saltfiskvinnslu í Grundarfirði, seiðaeldi á Hólum, fiskeldi í Þorlákshöfn og frystitogaranum Arnari auk ferskfisktogara Fisk Seafood.

Með nýrri skipan gæðamála fari gæðastjóri í fullu starfi fyrir þessu teymi, beri ábyrgð á allri sýnatöku og annast samskipti við Matvælastofnun og aðra eftirlitsaðila. Gæðastjóri taki sömuleiðis við mögulegum ábendingum um galla í framleiðslunni, sannreynir þær og bregst við með viðeigandi hætti. Stefanía muni á næstu vikum færa sig í áföngum úr fyrri verkefnum sínum yfir í þetta nýja hlutverk hjá Fisk Seafood.

Stefanía er með B.Sc.-gráðu í líftækni frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur starfað innan veggja Fisk Seafood hjá rannsókna- og þróunarfyrirtækinu Iceprotein frá árinu 2013 og síðustu þrjú árin sem rannsóknarstofustjóri. Auk verkefna sem tengdust Protis-vörunum frá Iceprotein hélt hún utan um aðferðafræði við gæðamælingar á afurðum fyrir matvæla- og fóðurfyrirtæki á Norðurlandi vestra. Stefanía er fædd og uppalin í Skagafirði, gift Atla Víði Arasyni og móðir þriggja barna þeirra.

Dagleg árvekni lykilatriði

„Það er afar ánægjulegt að fá Stefaníu til þessara starfa og ég er sannfærður um að hún hefur bæði þekkingu og reynslu til þess að taka gæðamálin okkar metnaðarfullum tökum,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri Fisk Seafood.

„Dagleg árvekni í gæðamálum er lykilatriði til þess að verja vörumerkið okkar á alþjóðlegum markaði og tryggja öryggi, heilnæmi og gæði vörunnar. Gæðastjórnun skiptir líka gríðarlegu máli í viðleitninni til þess að lágmarka matarsóun og hámarka þau verðmæti sem hægt er að fá úr aflanum og vinnslunni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »