Heiðrún og Guðmundur slógu í gegn

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, á ráðstefnunni.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, á ráðstefnunni. Ljósmynd/Íslandsstofa

Íslenskur sjávarútvegur var áberandi á sjávarútvegsráðstefnunni North Atlantic Seafood Forum sem fór fram í 14. skipti í Björgvin í Noregi í síðustu viku. Á ráðstefnunni í ár var Ísland gestaþjóð og á fyrsta degi hennar fór meðal annars fram málstofa með erindum frá íslenskum fyrirtækjum undir þemanu „sjálfbærni, gæði og nýsköpun“.

Mjög góð mæting var á íslensku málstofuna og mikill áhugi meðal annars frá erlendum blaðamönnum, sem vildu kynnast því sem Íslendingar eru að gera í sjávarútveginum í dag, að því er fram kemur á vef Íslandsstofu.

Íslenskir fyrirlesarar voru einnig áberandi á aðaldagskrá ráðstefnunnar sem er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum, en tæplega þúsund manns sækja hana árlega.

Eftir ávarp Ernu Solberg forsætisráðherra Noregs héldu bæði Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS og Guðmundur Kristjánsson forstjóri HB Granda erindi sem sögð eru hafa slegið í gegn á stóra sviðinu í Björgvin.

Stóð fyrir kokteilboði

Í lok aðaldagskrár ráðstefnunnar kynntu þau Stella Björg Kristinsdóttir og Kristján Þ. Davíðsson nýtt kynningarmyndskeið sem ber yfirskriftina "Inspired by Iceland" og sýndi forystuhlutverk Íslands í alþjóðlegum sjávarútvegi, þar sem tækni og nýsköpun eru megindrifkrafturinn.

Að kvöldi 6. mars stóð íslenska sendinefndin fyrir kokteilboði í samstarfi við sendiráð Íslands í Ósló fyrir alla gesti ráðstefnunnar þar sem aðilum gafst færi á að efla tengslin og mynda ný.

Ráðstefnunni lauk 7. mars en alls kynnti þar 21 íslenskt fyrirtæki starfsemi sína undir sameiginlegu yfirskriftinni "Inspired by Iceland", þ.e. Arion banki, Arnarlax, Curio, D-Tech, Hábrún, HB Grandi, Iceland Responsible Fisheries, Íslandsstofa, Marel, Matís, MSC á Ísland, Pólar toghlerar, Samskip, SFS, Skaginn 3X, Sæplast, Trackwell, VAKI, Valka, Viðskiptaþróun og Vísir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »