Stormur á leið úr landi

Stormur HF siglir inn í Reykjavíkurhöfn í desember 2017.
Stormur HF siglir inn í Reykjavíkurhöfn í desember 2017. mbl.is/Hari

Stormur Seafood hefur samið um sölu línu- og netaskipsins Storms HF til kanadísks útgerðarfélags. Kaupverðið er 14 milljónir evra, eða um 1,87 milljarðar króna.

Þetta staðfestir Steindór Sigurgeirsson, eigandi Storms Seafood, en segir að enn eigi eftir að tryggja fjármögnun kaupanna ytra. 

„Það er kominn kaupsamningur en það á eftir að hnýta nokkra lausa enda,“ segir hann í samtali við 200 mílur.

Skipið kom til Reykjavíkurhafnar í desember 2017 frá Gdansk í Póllandi, þar sem skrokk­ur­inn var lengd­ur úr 23 metrum í 45 metra. Út­gerðin hafði þá keypt skrokk­inn í Ný­fundna­landi nokkr­um árum áður.

Legið óhreyft í Reykjavíkurhöfn

Athygli vakti að skipið er „dísil-raf­knúið“ (e. diesel-electric) þar sem skrúfu­búnaður­inn er knú­inn af raf­mótor. Ork­an er feng­in með dísil-eldsneyti, sem dríf­ur raf­mótor­inn, en með þessu fyrirkomulagi mun orku­notk­un vera um helm­ingi minni en hjá sam­bæri­legu skipi.

Síðan hefur skipið hins vegar legið óhreyft í Reykjavíkurhöfn.

„Ég seldi kvótann og ákvað að hætta í útgerð og skipið hefur síðan þá verið til sölu. En skipið er æðislegt, frábært sjóskip í alla staði,“ segir Steindór.

Greint var fyrst frá sölu skipsins á vef Fiskifrétta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »