Kolmunnaveiðin í færeysku lögsögunni hefur gengið afar vel að undanförnu. Hafa skipin fyllt sig í fáum holum og miklum kolmunna hefur verið landað í fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar.
Þetta kemur fram á vef útgerðarinnar. Þar segir að verksmiðjurnar hafi tekið á móti um 75.000 tonnum af kolmunna til vinnslu það sem af er árinu. Til Neskaupstaðar hafi borist tæplega 44.000 tonn og til Seyðisfjarðar 31.000 tonn.
Börkur NK kom til Neskaupstaðar 1. maí með 2.200 tonn og á laugardag kom Beitir með 3.000 tonn. Bjarni Ólafsson AK landaði 1.730 tonnum á Seyðisfirði á laugardag og daginn eftir var landað 2.000 tonnum úr Margréti EA. Í dag hefur verið unnið að því að landa 1.600 tonnum úr Hákoni EA á Seyðisfirði.
Haft er eftir verksmiðjustjórunum Gunnari Sverrissyni á Seyðisfirði og Hafþóri Eiríkssyni í Neskaupstað að kolmunninn sé úrvalshráefni til vinnslu.
Skipin komi með hráefnið vel kælt að landi og þá gangi vinnslan hratt og vel fyrir sig. Hvor verksmiðja vinni um 1.200 tonn á sólarhring og mjölið sem fáist sé mjög gott. Hins vegar gefi kolmunninn lítið lýsi enda fiskurinn heldur magur á þessum árstíma.
Í morgun var Börkur NK að fylla á miðunum. Aflinn er 2.200 tonn sem fékkst í sex holum. Að sögn Leifs Þormóðssonar stýrimanns gáfu holin frá 250 tonnum og upp í 450 tonn. Sagði hann að aflinn væri dálítið misjafn en almennt góður, til dæmis hefðu góð hol fengist bæði í gærkvöldi og í morgun.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.4.24 | 448,49 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.4.24 | 562,68 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.4.24 | 314,23 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.4.24 | 191,66 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.4.24 | 152,79 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.4.24 | 271,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.4.24 | 133,77 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
19.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.417 kg |
Þorskur | 176 kg |
Skarkoli | 36 kg |
Rauðmagi | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.634 kg |
19.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.044 kg |
Þorskur | 690 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Ufsi | 19 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Rauðmagi | 12 kg |
Ýsa | 8 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Sandkoli | 2 kg |
Samtals | 3.816 kg |
19.4.24 Báran SI 86 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.080 kg |
Þorskur | 101 kg |
Skarkoli | 38 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Samtals | 1.236 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.4.24 | 448,49 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.4.24 | 562,68 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.4.24 | 314,23 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.4.24 | 191,66 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.4.24 | 152,79 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.4.24 | 271,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.4.24 | 133,77 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
19.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.417 kg |
Þorskur | 176 kg |
Skarkoli | 36 kg |
Rauðmagi | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.634 kg |
19.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.044 kg |
Þorskur | 690 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Ufsi | 19 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Rauðmagi | 12 kg |
Ýsa | 8 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Sandkoli | 2 kg |
Samtals | 3.816 kg |
19.4.24 Báran SI 86 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.080 kg |
Þorskur | 101 kg |
Skarkoli | 38 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Samtals | 1.236 kg |