Lengi hefur verið litið svo á að landanir úr uppsjávarskipum séu karlmannsverk, en breyting hefur orðið á því að undanförnu á Seyðisfirði. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar, þar sem segir að þegar landað hafi verið úr Bjarna Ólafssyni AK um síðustu helgi hafi þrjár stúlkur starfað við löndunaina.
Guðlaug Vala Smáradóttir var löndunarstjóri, Dóra Sigfúsdóttir starfaði í löndunarhúsinu og Elísa Björt Einarsdóttir vann í lest skipsins. Bent er á að Guðlaug Vala hafi reyndar starfað í kringum landanir á Seyðisfirði í ein fjögur ár.
„Því er unnt að segja að þetta karlavígi sem landanirnar hafa verið sé kolfallið,“ segir á vef útgerðarinnar. Gunnar Sverrisson, verksmiðjustjóri í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði, segist þá ekki vita til þess að konur starfi annars staðar við landanir af þessu tagi, hvað þá að þrjár starfi við sömu löndunina.
„Ekkert frekar strákastörf en stelpustörf“
„Jú, það má alveg segja það,“ segir Guðlaug Vala spurð hvort þessi breyting feli ekki í sér tímamót.
„Ég hef að vísu unnið í tengslum við landanir alllengi en það er gaman að fá fleiri stelpur í hópinn. Og það er alveg nýtt að stelpa vinni í lestinni við löndun. Nú hefur Elísa unnið í lest í þremur eða fjórum löndunum og kann afar vel við starfið. Hún gefur strákunum sko ekkert eftir. Ég veit ekki til þess að stelpur sinni störfum sem þessum annars staðar en ég fullyrði að þessi störf eru ekkert frekar strákastörf en stelpustörf. Ég vil bara hvetja stelpur til að sækjast eftir störfum við landanir, þær eiga ekki að hika við það. Það eru einungis hefðir sem koma í veg fyrir að stelpur vinni svona störf.“