Undirrituðu milljónasamning í Brussel

Péur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, og Freysteinn Nonni Mánason, sölustjóri …
Péur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, og Freysteinn Nonni Mánason, sölustjóri hjá Skaganum 3X. Ljósmynd/Aðsend

Hátæknifyrirtækið Skaginn 3X mun setja upp vinnslubúnað fyrir sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í línuskipið Pál Jónsson, sem er í smíðum og verður væntanlega tilbúið til afhendingar í haust. Félögin undirrituðu samning um verkefnið, sem hleypur á tugum milljóna íslenskra króna, við hátíðlega athöfn á sjávarútvegssýningunni í Brussel í síðustu viku.

Skaginn 3X greinir frá þessu í fréttatilkynningu í dag, þar sem segir að fyrirtækin hafi átt farsælt samstarf í gegnum tíðina. Síðasta samstarfsverkefni var að setja upp búnað í skipið Sighvat GK. Nýi búnaðurinn bætir alla aflameðhöndlun, svo sem blæðingu, kælingu, flokkun og frágang afla í lest. Verkefnið er að hluta til unnið með Marel, sem mun meðal annars sjá um flokkara og annan búnað.

„Skaginn 3X hefur unnið með Vísi að mörgum verkefnum í gegnum tíðina og komið að endurnýjun og þróun nýrra lausna í fiskiskip félagsins undanfarin ár,” segir Freysteinn Nonni Mánason, sölustjóri hjá Skaganum 3X. „Í þessu verkefni er enn bætt við nýjungum og meðal annars verður ný hönnun á skrúfum í RoteXTM-lausn skipsins, sem bæta mun blæðingu enn frekar,” bætir hann við.

Vísir hefur lagt mikla áherslu á ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði segir í tilkynningunni. Fyrirtækið býr nú þegar yfir góðum skipaflota til línuveiða og nýja skipið mun enn frekar styðja við stefnu félagsins um að veiða, vinna og framleiða afurðir úr fyrsta flokks hráefni fyrir breiðan hóp kröfuharðra viðskiptavina vítt og breitt um heiminn.

„Lausnin um borð í Páli Jónssyni hefur verið unnin í nánu og góðu samstarfi við sérfræðinga Skagans 3X og stuðlar að áframhaldandi framleiðslu á framúrskarandi matvælaafurðum,” segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis.

Skaginn 3X kynnti ValuePumpTM í Brussel.
Skaginn 3X kynnti ValuePumpTM í Brussel. Ljósmynd/Aðsend

Skaginn 3X kynnti ValuePumpTM í Brussel

Starfsmenn Skagans 3X hafa einbeitt sér að því að finna lausnir á því hvernig varðveita megi gæði hráefnis betur en áður þekktist. Árangur þeirrar vinnu var kælikerfið SUB-CHILLINGTM, sem undirkælir fisk án þess að ís komi þar við sögu.

„Þessi kælitækni skilaði undraverðum árangri og bætti líftíma fersks fisks um fimm til sjö daga,” segir Ingólfur Árnason, forstjóri Skagans 3X. Í framhaldi af undirkælingunni var ákveðið að ganga enn lengra og kallaði á þróun nýs tækis, sem var kynnt formlega í fyrsta sinn á sjávarútvegssýningunni í Brussel við mjög góðar viðtökur.

„Við köllum þetta tæki ValuePumpTM og það er algjörlega einstakt á markaðnum – ekkert annað tæki sem völ er á í dag getur gert það sama og nýja tækið okkar eða virkar á svipaðan hátt,“ segir hann.

Ingólfur segir að tækið muni valda byltingu í fiskiðnaðinum, draga verulega úr vinnslutíma og auka gæði afurða enn frekar. „Á meðan fiski er dælt á milli staða innan vinnslunnar má ná fram margs konar ávinningi; stytta blæðingartíma, flýta kæliferlinu, þvo fiskinn, sótthreinsa hann, sjóða eða frysta. Við erum sem sagt með dælu, en það fer svo allt eftir vökvanum sem um hana rennur hverju sinni hver ávinningurinn verður. Um dæluna getur runnið vökvi sem er allt frá því að vera 80 gráðu heitur niður í það sem jafngildir 20 gráða frosti og allt þar á milli.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 4.588 kg
Ýsa 1.782 kg
Karfi 164 kg
Steinbítur 129 kg
Ufsi 27 kg
Langa 11 kg
Keila 11 kg
Samtals 6.712 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 4.588 kg
Ýsa 1.782 kg
Karfi 164 kg
Steinbítur 129 kg
Ufsi 27 kg
Langa 11 kg
Keila 11 kg
Samtals 6.712 kg

Skoða allar landanir »