„Eins og þruma úr heiðskíru lofti“

Spurð hvort fyrirtækið muni lifa tjónið af segist hún þurfa …
Spurð hvort fyrirtækið muni lifa tjónið af segist hún þurfa að meta það þegar fram líði stundir. Ljósmynd/Northern Lights Salmon

Fjöldi kara, sem full eru af dauðum laxi, liggur nú á bryggjunni í Grófarfirði (Grovfjord) í Tromsfylki í Noregi, eftir að þörungablómi varð í firðinum fyrr í vikunni, með tilheyrandi tjóni fyrir laxeldi sem þar er.

„Þörungarnir komu eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ segir Elisabeth Balteskard, framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Northern Lights Salmon, í samtali við norska fréttavefinn iLaks.

Þörungablóminn hefur komið illa við fjölskyldufyrirtækið, að því er fram kemur í umfjöllun vefsins.

„Körin sem þú sérð á myndinni er aðeins lítill hluti af heildarmyndinni. Það er erfitt að sætta sig við þetta,“ segir Balteskard.

„Það er ekkert annað sem dugar núna en að koma fiskinum á land og taka hann svo þaðan. Mesta áskorunin felst í að mylja hann niður, það er hreinlega ekki nægilega mikil geta til þess hér á svæðinu.“

Svo mikill er laxadauðinn að þurft hefur að flytja kör …
Svo mikill er laxadauðinn að þurft hefur að flytja kör að sunnan frá Lófót til að hægt sé að fylla þau með laxi. Ljósmynd/Northern Lights Salmon

Kör flutt norður frá Lófót

Hún segir fyrirtækið þurfa að taka meirihluta af kostnaðinum við tjónið á sig.

„En við höfum glímt við áskoranir áður og höfum lært að ýmsir hlutir geta komið upp á.“

Spurð hvort fyrirtækið muni lifa tjónið af segist hún þurfa að meta það þegar fram líði stundir. 

„Við erum með fjölda starfsmanna, að minnsta kosti í sláturhúsinu, sem átti að vinna í allt sumar. Nú er þetta allt í lausu lofti.“

Svo mikill er laxadauðinn að þurft hefur að flytja kör að sunnan frá Lófót til að hægt sé að fylla þau með laxi.

„Við höfum fjölda báta og áhafnir að störfum og fylgjumst vel með ástandinu. Við teljum að við höfum stjórn á þessu núna. En þetta lítur ekki vel út hvað varðar fjölda dauðra laxa.“

Hún bendir að lokum á að fyrirtækið hafi í fimm til sex ár barist fyrir því að fá að stunda eldi á fleiri stöðum. Með því fyrirkomulagi hefði verið hægt að dreifa áhættunni sem fylgi atburðum sem þessum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sindri BA 24 Grásleppunet
Grásleppa 608 kg
Þorskur 16 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 633 kg
19.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 858 kg
Þorskur 60 kg
Skarkoli 19 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 939 kg
19.4.24 Jón Bjarni BA 50 Grásleppunet
Grásleppa 368 kg
Steinbítur 30 kg
Þorskur 11 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 417 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sindri BA 24 Grásleppunet
Grásleppa 608 kg
Þorskur 16 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 633 kg
19.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 858 kg
Þorskur 60 kg
Skarkoli 19 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 939 kg
19.4.24 Jón Bjarni BA 50 Grásleppunet
Grásleppa 368 kg
Steinbítur 30 kg
Þorskur 11 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 417 kg

Skoða allar landanir »