Virðist sem einn aðili taki þessa ákvörðun

Matvælastofnun hefur rætt við skipverja á Bíldsey SH-65 sem skar sporðinn af hákarli og sleppti honum sporðlausum lifandi í sjóinn. Athæfið var tekið upp á myndband en Matvælastofnun beinir spjótum sínum fyrst og fremst að þeim sem skar sporðinn af.

Alls hefur þremur skipverjum á Bíldsey verið sagt upp störfum vegna málsins. Tveimur þeirra var sagt upp í gær og þá greindi dv.is frá því í morgun að þriðja manninum hefði verið sagt upp.

Þóra J. Jón­as­dótt­ir, dýra­lækn­ir dýra­vel­ferðar hjá Mat­væla­stofn­un, segir málið komið í ferli hjá stofnuninni. Fyrsta skref sé að hafa samband við hlutaðeigandi og það hafi verið gert. Þar sé gerð grein fyrir því að rökstuddur grunur sé um að mennirnir hafi brotið lög um velferð dýra og viðurlög við því geti verið sekt eða kæra til lögreglu.

Síðan sé farið yfir rannsóknargögn og þær upplýsingar sem Matvælastofnun hafi um málið en þar er málið statt í dag.

„Í framhaldinu er tekin ákvörðun um hvernig málið skuli afgreitt,“ segir Þóra. Í slíkum málum getur viðkomandi fengið stjórnvaldssekt, málið kært til lögreglu eða látið niður falla. Mat­væla­stofn­un hef­ur heim­ild til þess að beita sekt­um upp á allt að millj­ón með til­liti til al­var­leika brots, sam­starfs­vilja og ásetn­ings.

Skipverjar á Bíldsey SH-65 gætu átt yfir höfði sér refsingu …
Skipverjar á Bíldsey SH-65 gætu átt yfir höfði sér refsingu fyrir athæfi sitt. Ljósmynd/Björgvin Baldursson

Þóra segist reikna með því að málið verði afgreitt frekar hratt. „Við höfum fengið mikið af upplýsingum í gegnum myndbönd sem hafa hjálpað til við að fá heildarsýn á málið,“ segir Þóra.

Hún segir að stofnunin beini spjótum sínum fyrst og fremst að þeim sem skar sporðinn af hákarlinum. „Við lítum svo á að það sem virðist koma fram í þessu myndbandi er að einn aðili taki sérstaklega þessa ákvörðun og framkvæmi hana. Við vinnum eftir því eins og er.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »