Fjölmiðlabann í Sjómannafélagsdeilu

Listi Heiðveig­ar býður nú öðru sinni fram til stjórn­ar Sjó­manna­fé­lags­ins, …
Listi Heiðveig­ar býður nú öðru sinni fram til stjórn­ar Sjó­manna­fé­lags­ins, eft­ir að boðað var til nýrra kosn­inga í kjöl­far niður­stöðu fé­lags­dóms. mbl.is/Eggert

Kjörstjórn Sjómannafélags Íslands og fulltrúar framboðs B-lista til stjórnar vinna nú að farsælli lausn á deilu sem þeirra ríkir á milli um gildi framboðsins og munu ekki tjá sig fyrr en niðurstaða kemst í málið.

Framboðslista B-listans, sem leiddur er af Heiðveigu Maríu Einarsdóttur, var hafnað af kjörstjórn og honum gefinn frestur til 10. júní til lagfæringar og söfnunar 100 nýrra undirskrifta.

Heiðveig María tók ekki í mál að safna meðmælum að nýju og stóð til að kjörstjórn tæki ákvörðun um gildi framboðsins á fundi sínum í dag. Þá óskaði Heiðveig María eftir því að fulltrúi B-listans fengi að funda með kjörstjórn og gekk það eftir í dag.

„Erum að vinna að niðurstöðu“

Þegar blaðamaður mbl.is heyrði í Benóný Harðarsyni, starfsmanni VM og fulltrúa í kjörstjórn sem hlutlaus aðili, nú síðdegis fengust þær upplýsingar að aðilar hefði komist að samkomulagi um fjölmiðlabann þar til ákvörðun hefði verið tekin. Sigurður Þórður Jónsson, varaformannsefni B-listans, staðfesti í samtali við mbl.is að aðilar hefðu ákveðið að tjá sig ekki nánar fyrr en sátt hefði verið náð. „Við erum að vinna að niðurstöðu og hún er ekki komin.

Gerði Sigurður Þórður ráð fyrir því að greitt yrði úr málinu á morgun.

Listi Heiðveig­ar býður nú öðru sinni fram til stjórn­ar Sjó­manna­fé­lags­ins, eft­ir að boðað var til nýrra kosn­inga í kjöl­far niður­stöðu fé­lags­dóms fyrr á ár­inu. Heiðveig hafði upp­haf­lega á síðasta ári boðið sig fram í fé­lag­inu, en það fram­boð hafði verið dæmt ógilt og henni vísað úr fé­lag­inu. Fé­lags­dóm­ur dæmdi henni hins veg­ar í hag og var í kjöl­farið boðað aft­ur til kosn­inga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »