„Hangir enn á sömu rökleysunni“

„Fulltrúar okkar funduðu með kjörstjórn í vikunni og fengu ekki …
„Fulltrúar okkar funduðu með kjörstjórn í vikunni og fengu ekki að sjá þennan A-lista heldur.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þessi niðurstaða hangir enn á sömu rökleysunni sem á sér ekki stoð í lögum félagsins og við höfum óskað eftir fundi með kjörstjórn á morgun og vona ég að þeir verði við því,“ segir Heiðveig María Einarsdóttir, innt eftir viðbrögðum við úrskurði kjörstjórnar Sjómannafélags Íslands þess efnis að framboð B-lista hennar sé ógilt og A-listi því sjálfkjörinn í stjórn félagsins.

Heiðveig segir að færa megi rök fyrir því að kjörstjórnin sé vanhæf. „Eins og við höfum áður bent á situr í þriggja manna kjörstjórn Guðmundur Hallvarðsson, sem við höfum fengið staðfest að er á sjálfkjörna listanum, og tilheyrir þar að auki engri starfsgrein innan félagsins.“

Þannig sé A-listinn einnig ógildur, en fulltrúar B-listans hafa óskað eftir því að fá listann sendan. „Fulltrúar okkar funduðu með kjörstjórn í vikunni og fengu ekki að sjá þennan A-lista heldur. Það eru að sjálfsögðu ekki eðlileg vinnubrögð.“

Að líkindum annað dómsmál í uppsiglingu

„Það er miðað við kosningalög þegar okkur er gefinn þessi frestur til að lagfæra listann og þá hljóta almenn kosningalög að gilda um annað, eins og t.d. vanhæfi kjörstjórnar. Það má líka benda á það að formaður kjörstjórnar, Jónas Þór Jónasson, er lögmaðurinn sem var ráðgefandi og sótti málið gegn mér fyrir félagsdómi og öllum er kunnugt um að hann hafi tapað.“

Heiðveig segir segir málinu engan veginn lokið og að fulltrúar B-listans séu búnir að bera úrskurðinn undir ráðgjafa sína og séu að meta næstu skref, en að öllum líkindum þurfi að skera úr um málið fyrir dómstólum enn á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,93 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Grásleppa 2.154 kg
Þorskur 104 kg
Steinbítur 21 kg
Skarkoli 18 kg
Samtals 2.297 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Þorskur 52 kg
Samtals 52 kg
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.903 kg
Þorskur 288 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 10 kg
Samtals 2.240 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.440 kg
Samtals 1.440 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,93 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Grásleppa 2.154 kg
Þorskur 104 kg
Steinbítur 21 kg
Skarkoli 18 kg
Samtals 2.297 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Þorskur 52 kg
Samtals 52 kg
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.903 kg
Þorskur 288 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 10 kg
Samtals 2.240 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.440 kg
Samtals 1.440 kg

Skoða allar landanir »