Um klukkan hálfeitt í dag voru björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi kallaðar út vegna skips sem strandað hafði rétt utan við Stykkishólm. Skipið er staðsett um 1,3 sjómílur frá bænum nærri Hvítabjarnarey og er 22 tonna fjölveiðiskip.
Enginn leki er á skipinu og skipverjar eru enn um borð. Flóðs er beðið til að sigla á brott.
Björg, björgunarskip Björgunarsveitar Slysvarnarfélags Landsbjargar, er komið á vettvang og stjórnar nú aðgerðum.
Hér er svo að segja bein útsending af vettvangi úr vefmyndavél.
Blíða SH-277 steytir á skeri rétt utan við Stykkishólm.
Vefmyndavél Stykkishólmi
Björgunarskipið Björg frá Rifi er einnig á leiðinni á vettvang ásamt öðrum nærtækum skipum. Allt bendir til þess að beðið verði eftir flóði til að losa bátinn af strandstað, samkvæmt tilkynningu Landsbjargar.
Uppfært 14.23:
Umrætt skip er Blíða SH-277, 23 metra langt fiskiskip, miðað við upplýsingar frá Landhelgisgæslunni. Það steytti á skeri á Breiðafirði 1,3 sjómílur austnorðaustur af Stykkishólmi.
Búið er að tryggja vettvang. Björg, björgunarskip Björgunarsveitar Slysvarnarfélags Landsbjargar, er komið á vettvang og stjórnar nú aðgerðum. Veður er gott en skipið hallar töluvert enn þá.
Blíða SH-277 rataði í fréttirnar í maí þegar rauk úr henni þar sem hún var í slippnum í Njarðvík.
Björgunarbátur frá Stykkishólmi var snöggur á vettvang. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Ljósmynd/Landsbjörg