Hefring náð samkomulagi um fjármögnun

Forsvarsmenn Hefring ásamt Huld Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs.
Forsvarsmenn Hefring ásamt Huld Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Hefring ehf. hafa gengið frá samkomulagi um fjármögnun og mun sjóðurinn eignast tæplega fjórðungshlut í félaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu, en Hefring ehf. þróar lausnir sem eiga að auka öryggi sjófarenda og veita bátaeigendum betri yfirsýn yfir meðferð báta.

Fyrsta vara félagsins, Hefring Marine, miðar að því að auka öryggi og fækka slysum um borð í hraðbátum, en hún veitir skipstjórnarmönnum leiðbeinandi upplýsingar á meðan siglingu stendur og rekstraraðilum báta innsýn og greiningu á gögnum um hegðun og viðbrögð á siglingu.

Hóf starfsemi í fyrra

Í tilkynningunni segir að búnaðinum megi líkja við ökurita í bifreiðum. Hefring stefnir jafnframt á að búa til nýjar lausnir sem byggja á gögnum frá bátum, greina siglingu og aðra þætti sem nota má til að bæta rekstur báta.

Hefring hóf starfsemi á síðasta ári. Að fyrirtækinu standa þeir Karl Birgir Björnsson, Björn Jónsson og Magnús Þór Jónsson. Félagið tók þátt í TINC hraðlinum á vegum Nordic Innovation House í Palo Alto í Kaliforníu í nóvember 2018 og var einnig valið sem fulltrúi Íslands í alþjóðlegri samkeppni sprotafyrirtækja, Creative Business Cup National Competition í Kaupmannahöfn. Þá hefur Hefring verið kynnt við góðar undirtektir fyrir fjölda aðila sem starfa á bátamarkaði á alþjóðlegum vettvangi.

Fyrirtækið sér tækifæri fyrir búnaðinn hjá fjölmörgum notendum báta, svo sem hjá rekstraraðilum ferðaþjónustubáta, skemmtibáta og vinnubáta, en einnig hjá strandgæslum, björgunarsveitum og lögregluyfirvöldum, og kynnir á þessu ári fyrstu útgáfu lausnarinnar fyrir fyrstu viðskiptavinum á Íslandi og í Noregi.

Skýr alþjóðleg skírskotun

Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, segir sjóðinn telja Hefring vera áhugavert tæknifyrirtæki sem falli vel að stefnu og áherslum sjóðsins.

„Fyrirtækið hefur skýra alþjóðlega skírskotun, veitir betri upplýsingar um siglingar og rekstur báta og stuðlar þannig að fækkun slysa sem er mikilvægt þar sem sífellt eru gerðar auknari kröfur um öryggismál.“ 

Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring, segist ánægður með aðkomu sjóðsins og að aðstandendur fyrirtækisins sjái fram á gott samstarf með því öfluga teymi sem þar starfi.

„Aðkoman styður við áframhaldandi þróun og markaðsetningu á Hefring Marine-lausninni sem við stefnum á að koma á markað í sinni fyrstu útgáfu á næstu mánuðum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »