31 þúsund tonn í sérstakar aðgerðir

Kristján Þór segir að úthluta megi þessum verðmætum með öðrum …
Kristján Þór segir að úthluta megi þessum verðmætum með öðrum og betri hætti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ráðstafað rúmlega 31 þúsund tonnum til sérstakra aðgerða í fiskveiðistjórnunarkerfinu eða samtals 23.316 þorskígildistonnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Segir þar að um árlega úthlutun sé að ræða sem byggi á lögum um stjórn fiskveiða en samkvæmt þeim sé 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund dregið af leyfilegum heildarafla til að mæta áföllum, til stuðnings byggðalögum, línuívilnun, strandveiðum, rækju- og skelbótum, frístundaveiðum og til annarra tímabundinna ráðstafana til að auka byggðafestu.

Megi úthluta með öðrum og betri hætti

Kristján Þór segir að stjórnvöld séu með þessari úthlutun að ráðstafa þeim aflaheimildum sem þau fari með forræði yfir.

„Ég er þeirrar skoðunar að þessum miklu verðmætum megi úthluta með öðrum og betri hætti en nú er gert. Því skipaði ég í maí síðastliðnum starfshóp til að endurskoða núgildandi kerfi og vænti ég þess að hópurinn ljúki störfum í nóvember. Ég bind vonir við að afrakstur þeirrar vinnu megi nýta til að úthluta þessum verðmætum með betri og markvissari hætti en nú er.“

Leyfilegur heildarafli er minni en á síðasta fiskveiðiári, en fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 var úthlutunin 32.380 af tonnum upp úr sjó eða alls 25.456 þorskígildistonnum. Ástæður fyrir því eru sagðar þær að þrátt fyrir að þorskstofninn sé sterkari en á liðnu fiskveiðiári hafi margar minni tegundir lækkað.

Einnig hafi það áhrif að heildarafli ýsu sé 28% minni en á síðasta fiskveiðiári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðrún Petrína HU 107 Grásleppunet
Grásleppa 1.141 kg
Þorskur 83 kg
Samtals 1.224 kg
19.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 343 kg
Ýsa 113 kg
Karfi 7 kg
Samtals 463 kg
19.4.24 Sunna Líf GK 61 Grásleppunet
Grásleppa 345 kg
Samtals 345 kg
19.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 769 kg
Ýsa 14 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 785 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðrún Petrína HU 107 Grásleppunet
Grásleppa 1.141 kg
Þorskur 83 kg
Samtals 1.224 kg
19.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 343 kg
Ýsa 113 kg
Karfi 7 kg
Samtals 463 kg
19.4.24 Sunna Líf GK 61 Grásleppunet
Grásleppa 345 kg
Samtals 345 kg
19.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 769 kg
Ýsa 14 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 785 kg

Skoða allar landanir »