Ekki neitt lát á göngum upp að landi

Víkingur AK. Skipið er nú á Vopnafirði.
Víkingur AK. Skipið er nú á Vopnafirði. Ljósmynd/HB Grandi

„Við vorum að veiðum út af Reyðarfjarðardjúpi en þaðan er um átta tíma sigling til Vopnafjarðar. Það var dálítið erfitt að forðast síld sem aukaafla en það gerist á hverju ári að síld kemur með makrílnum. Þá færir maður sig bara í von um að fá hreinan makríl,“ segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK.

Skipið er nú á Vopnafirði og kom þangað í gærkvöldi með um 770 tonna afla að því er fram kemur á vef HB Granda.

Að sögn Alberts hafa aflabrögð yfirleitt verið góð síðustu vikur en það hefur valdið vissum erfiðleikum að á sumum stöðum hefur síld blandast makrílnum. Síldina vilja sjómenn helst ekki veiða fyrr en eftir makrílvertíðina. Mikil ferð hefur verið á makrílnum í norðausturátt.

Töluvert af makríl fyrir vestan land

„Það var mjög góð veiði um verslunarmannahelgina en þá var aðalveiðisvæðið í Litladjúpi og Hvalbakshallinu. Núna er makríllinn kominn mun norðar og mér skilst að einhver skip hafi verið að veiðum út af Vopnafirði. Þetta er allt rígvænn fiskur, 500 grömm og þyngri, og enn sem komið er virðist ekki vera neitt lát á göngum upp að landinu,“ segir Albert.

Albert segir einnig vera töluvert af makríl fyrir vestan land en uppsjávarskipin hafa ekki farið þangað til veiða.

„Það hafa tveir togarar frá Grindavík verið að makrílveiðum fyrir vestan land en annar þeirra er nú kominn hingað austur. Það má vera að veiðin fyrir vestan hafi dalað eitthvað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 696 kg
Samtals 696 kg
20.4.24 Silver Crystal (LAD08) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 163.969 kg
Samtals 163.969 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 696 kg
Samtals 696 kg
20.4.24 Silver Crystal (LAD08) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 163.969 kg
Samtals 163.969 kg

Skoða allar landanir »