Reyna að bjarga grindhvölum við Ólafsvík

Hópur fólks reyndi í kvöld að koma grindhval til bjargar …
Hópur fólks reyndi í kvöld að koma grindhval til bjargar sem rak á land í fjörunni við Ólafsvík. mbl.is/Alfons

Fjóra hvali rak á land í fjöru við Ólafsvík í kvöld. Stærðarinnar grindhvalavaða, sem telur líklega um hundrað hvali, er á sveimi um 100-200 metra frá ströndinni. Þrír hvalanna sem rak á land náðu að komast af sjálfsdáðum aftur á haf út en einn virðist vera að drepast í flæðarmálinu. 

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, var í fjörunni í kvöld. „Það er voða lítið hægt að gera held ég, það er töluverður vindur. Hvalurinn veltist bara undan bárunni og nær ekki að koma sér út. Það sem er kannski mesta ógnin er að vaðan virðist alltaf færast nær landi,“ segir Kristinn í samtali við mbl.is. 

Hópur fólks hefur reynt að bjarga hvalnum um tíma, en ekki haft erindi sem erfiði. Fréttaritari mbl.is á Vesturlandi telur að um erlenda ferðamenn sé að ræða. 

Grind­hvala­vöður hafa leitað nærri strönd­um Íslands á Suðvest­ur- og Vest­ur­landi í aukn­um mæli upp á síðkastið en á milli 50 og 60 hval­ir strönduðu í fjör­unni við Útskála­kirkju í Garði í byrjun mánaðarins. 

Grindhvalavöður hafa sést í grennd við Ólafsvík í sumar. „Fyrir þremur vikum var ein úti í Rifi, um 150 talsins, og þá komu menn á sæþotum og ráku þá út,“ segir Kristinn. 

Viðbragðsaðilar hafa ekki verið kallaðir út vegna vöðunnar, enn sem komið er.

Fjóra hvali rak á land en þrír þeirra náðu að …
Fjóra hvali rak á land en þrír þeirra náðu að komast á haf út af sjálfsdáðum. mbl.is/Alfons
Stærðarinnar grindhvalavaða er á sveimi við ströndina í Ólafsvík og …
Stærðarinnar grindhvalavaða er á sveimi við ströndina í Ólafsvík og færist sífellt nær landi að sögn sjónarvotta. mbl.is/Alfons
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 10.108 kg
Þorskur 718 kg
Ýsa 71 kg
Samtals 10.897 kg
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.233 kg
Þorskur 118 kg
Skarkoli 6 kg
Rauðmagi 4 kg
Þykkvalúra 3 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 1.366 kg
27.3.24 Júlía SI 62 Grásleppunet
Grásleppa 2.299 kg
Þorskur 251 kg
Rauðmagi 20 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 2.576 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 10.108 kg
Þorskur 718 kg
Ýsa 71 kg
Samtals 10.897 kg
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.233 kg
Þorskur 118 kg
Skarkoli 6 kg
Rauðmagi 4 kg
Þykkvalúra 3 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 1.366 kg
27.3.24 Júlía SI 62 Grásleppunet
Grásleppa 2.299 kg
Þorskur 251 kg
Rauðmagi 20 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 2.576 kg

Skoða allar landanir »