Verið hótað refsiaðgerðum áður

Lítið hefur farið fyrir makríldeilunni síðustu árin en hún var …
Lítið hefur farið fyrir makríldeilunni síðustu árin en hún var um árabil í sviðsljósinu eftir að makríll fór að ganga í miklum mæli inn í íslensku efnahagslögsöguna. mbl.is/Árni Sæberg

„Samstarf er nauðsynlegt ef stýra á veiðum úr deilistofnum á sjálfbæran hátt. Framganga Íslands einkennist af græðgi og ábyrgðarleysi. Þetta er ekki framganga vinaþjóðar svo ekki sé talað um þjóðar sem er hluti af Evrópska efnahagssvæðinu.“

Þetta er haft eftir Chris Davies, þingmanni Frjálslyndra demókrata í Bretlandi á þingi Evrópusambandsins og formanni sjávarútvegsnefndar þingsins, á fréttavef breska dagblaðsins The Shetland Times vegna deilu sambandsins við Ísland um makrílveiðar í norðausturhluta Atlantshafsins sem staðið hefur yfir um árabil. Lét Davies ummælin falla á nýverið eftir fund með forystumönnum sjómanna á Hjaltlandseyjum.

Lítið hefur farið fyrir makríldeilunni síðustu árin en hún var um árabil í sviðsljósinu eftir að makríll fór að ganga í miklum mæli inn í íslensku efnahagslögsöguna. Tóku íslensk stjórnvöld ákvörðun um að gefa út heimild til þess að veiða makrílinn sem var illa tekið af Evrópusambandinu sem og stjórnvöldum í Bretlandi og á Írlandi.

Tilraunir til þess að semja um veiðar í makrílstofninum runnu ítrekað út í sandinn, en Evrópusambandið taldi Íslendinga í raun ekki eiga neinn rétt á veiðum úr stofninum. Íslensk stjórnvöld sögðu á móti að stofninn gengi nú inn í íslensku lögsöguna og því eðlilegt að veiða hann. Þá æti hann fæðu frá öðrum stofnum í lögsögunni.

Refsiaðgerðum var hótað af hálfu Evrópusambandsins á árunum 2012-2013 undir þrýstingi frá hagsmunaaðilum, einkum í Skotlandi og á Írlandi, en til þeirra kom hins vegar ekki. Davies hefur nú kallað á ný eftir því að gripið verði til viðskiptaþvingana gagnvart Íslandi í kjölfar þess að íslensk stjórnvöld gáfu út makrílkvóta.

Davies mun funda með framkvæmdastjórn sambandsins 4. september eins og mbl.is greindi frá um helgina þar em hann hyggst krefjast þess að gripið verði til viðskiptaþvingana gegn Íslandi. Sjómenn á Hjaltlandseyjum hafa fagnað framgöngu þingmannsins í málinu að því er segir í frétt The Shetland Times.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 447,00 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 313,45 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 153,68 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,49 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 447,00 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 313,45 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 153,68 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,49 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »