Tengir makríldeiluna við EES

Chris Davies, þingmaður Frjálslyndra demókrata í Bretlandi á þingi Evrópusambandsins …
Chris Davies, þingmaður Frjálslyndra demókrata í Bretlandi á þingi Evrópusambandsins og formaður sjávarútvegsnefndar þingsins. Ljósmynd/Evrópuþingið

Vegna aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) er hægt að ætlast til þess að Íslendingar eigi í nánu samstarfi við Evrópusambandið varðandi verðar á makríl. Þetta segir Chris Davies, þingmaður Frjálslyndra demókrata á þingi sambandsins og formaður sjávarútvegsnefndar þingsins, í samtali við mbl.is.

Davies hefur farið hörðum orðum að undanförnu um þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að setja sér einhliða makrílkvóta í íslensku efnahagslögsögunni og auka hann. Hefur hann sagt ákvörðunin til marks um græðgi og ábyrgðarleysi. Þá hefur hann ítrekað tengt aðild Íslands að EES-samningnum við makríldeiluna.

Þannig sagði Davies eftir fund með fulltrúum sjómanna á Hjaltlandseyjum á dögunum að ákvörðun Íslendinga væri ekki framganga vinaþjóðar svo ekki væri talað um aðildarríkis að EES. Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir þingmanninum að þó Ísland væri sjálfstætt strandríki væri það einnig aðili að EES-samningnum.

Davies segir að ummæli hans séu fyrst og fremst birtingarmynd vonbrigða með Ísland. Þó Íslendingar væru ekki í Evrópusambandinu tækju þeir upp mikið af regluverki sambandsins. Vonbrigði hans sneru að því að Ísland virtist hafa snúið baki við samstarfsríkjum sínum þegar kæmi að sjálfbærum veiðum.

Hins vegar hlakkaði hann til þess að heyra sjónarmið íslenskra embættismanna á óformlegum fundi í Brussel á þriðjudaginn í næstu viku. Komið hefur fram að Davies muni funda með framkvæmdastjórn Evrópusambandsins daginn eftir þar sem hann ætli að kalla eftir því að gripið verði til refsiaðgerða gegn Íslandi ef þess þurfi.

Spurður í hverju mögulegar refsiaðgerðir kunni að felast og hvort þær muni þá hugsanlega tengjast aðild Íslands að EES-samningnum með einhverjum hætti í ljósi ummæla hans svarar Davies því til að hann eigi von á því að leggja spurningar þess eðlis fyrir fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar á fundinum eftir rúma viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »