Heildaraflaverðmæti á strandveiðum sumarsins var um þrír milljarðar og hefur heildarafli aldrei verið meiri á strandveiðum, en þær hófust sumarið 2009. Ágætt verð fékkst fyrir aflann og nokkru hærra en í fyrra.
Áætla má að aflaverðmæti meðalbátsins hafi verið tæpar fimm milljónir í sumar en þeir aflahæstu hafi fiskað fyrir 13-14 milljónir. Bátum fjölgaði frá síðasta ári en meðalafli minnkaði hins vegar.
Heildarafli sumarsins var 10.261 tonn og aukning um 5% frá því í fyrra. Alls komu strandveiðibátarnir með 9.162 tonn af þorski í land, en viðmiðunin var upp á 11.100 tonn í þorski að hámarki. Óveidd eru því rúm 1.900 tonn af þorski á strandveiðunum og segist Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, telja einsýnt að þau tonn komi til viðbótar úthlutun næsta árs.
Setjast þurfi niður á næstunni til að ræða þessa stöðu. Hugsanlega megi lengja tímabilið í báða enda og byrja í apríl og hætta í september. Einnig megi fjölga dögum til veiða í hverjum mánuði, en nú er heimilt að veiða fjóra virka daga í hverri viku frá mánudegi til fimmtudags.
Jón Ingvar Hilmarsson á Birtu SU frá Djúpavogi var aflahæstur á strandveiðum sumarsins með 52,4 tonn í 46 róðrum. Veiðisvæði við landið eru fjögur og á svæði A, frá Arnarstapa til Súðavíkur, var Kolga BA aflahæst með tæp 47 tonn í 48 róðrum, á svæði B frá Norðurfirði til Grenivíkur var Svala EA aflahæst með tæp 38 tonn í 45 róðrum, Birta á C-svæði sem nær frá Húsavík til Djúpavogs og á D-svæði frá Höfn í Borgarnes var Ásbjörn SF aflahæstur með rúm 47 tonn í 45 róðrum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.4.24 | 436,69 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.4.24 | 566,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.4.24 | 213,60 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.4.24 | 118,02 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.4.24 | 168,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.4.24 | 205,91 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.4.24 | 228,36 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 6,89 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
24.4.24 Ver AK 38 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 934 kg |
Samtals | 934 kg |
24.4.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 12.806 kg |
Ýsa | 1.274 kg |
Steinbítur | 114 kg |
Ufsi | 47 kg |
Keila | 13 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 14.256 kg |
24.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.701 kg |
Ýsa | 13 kg |
Keila | 3 kg |
Samtals | 1.717 kg |
24.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.661 kg |
Karfi | 15 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Samtals | 2.681 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.4.24 | 436,69 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.4.24 | 566,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.4.24 | 213,60 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.4.24 | 118,02 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.4.24 | 168,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.4.24 | 205,91 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.4.24 | 228,36 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 6,89 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
24.4.24 Ver AK 38 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 934 kg |
Samtals | 934 kg |
24.4.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 12.806 kg |
Ýsa | 1.274 kg |
Steinbítur | 114 kg |
Ufsi | 47 kg |
Keila | 13 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 14.256 kg |
24.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.701 kg |
Ýsa | 13 kg |
Keila | 3 kg |
Samtals | 1.717 kg |
24.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.661 kg |
Karfi | 15 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Samtals | 2.681 kg |