Pútín gangsetti íslenskan tæknibúnað

Afkastageta uppsjávarverksmiðju útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Gidrostroy í Rússlandi er 900 …
Afkastageta uppsjávarverksmiðju útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Gidrostroy í Rússlandi er 900 tonn á sólarhring, en tæknibúnaðurinn er frá þremur íslenskum fyrirtækjum. Ljósmynd/Skaginn 3X

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ræsti uppsjávarverksmiðju fyrir rússneska útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Gidrostroy á Eastern Economic Forum-ráðstefnunni í Vladivostok í gær.

Íslensku tæknifyrirtækin Skaginn 3X, Frost og Rafeyri hafa sett upp tæknibúnað í verksmiðjunni, sem staðsett er á Shikotan-eyju við austurströnd Rússlands, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Skaganum 3X.

Vladimir Putin, forseti Rússlands, á ráðstefnunni Eastern Economic Forum.
Vladimir Putin, forseti Rússlands, á ráðstefnunni Eastern Economic Forum. AFP

Þá segir í tilkynningunni að fyrirtækin hafi undirritað samning um uppsetninguna á síðasta ári og að virði samningsins hlaupi á milljörðum íslenskra króna. Jafnframt er bent á að verksmiðjan sem um ræðir „er búin heildarlausnum frá fyrirtækjunum þremur til að flokka, pakka og frysta 900 tonn af uppsjávarfiski á sólarhring“.

Þekking á vinnslu uppsjávarfisks

„Við hjá Skaganum 3X erum einstaklega stolt af verksmiðjunni og þakklát fyrir tækifærið til þess að taka þátt í nútímavæðingu rússneska sjávarútvegsins,“ er haft eftir Pétri Jakobi Péturssyni, sölustjóra Skagans 3X í Rússlandi.

„Íslenskur sjávarútvegur er sjálfbær og einn sá tæknivæddasti í veröldinni. Okkur hefur tekist að einblína á gæði vörunnar og þar af leiðandi fengið hærra verð fyrir minni heildarafla. Tækni og sjálfvirkni hefur spilað stórt hlutverk og stuðlað að eftirspurn eftir íslenskri þekkingu og lausnum,“ segir Pétur Jakob.

Pétur Jakob Pétursson.
Pétur Jakob Pétursson. Ljósmynd/Skaginn 3X

Fram kemur í tilkynningunni að Skaginn 3X sérhæfi sig í vinnslu á uppsjávarfiski og er bent á að fyrirtækið hafi meðal annars hannað og sett upp búnað með afkastagetu allt að 1.300 tonn á sólarhring fyrir færeyska félagið Varðin Pelagic. En færeyska verksmiðjan er sögð sú stærsta sinnar tegundar í heiminum.

Eastern Economic Forum er vettvangur Rússa til þess að kynna landið og stuðla að erlendri fjárfestingu. Eigandi Gidrostroy-sjávarútvegsfyrirtækisins Alexander Verkhovskiy var viðstaddur þegar Pútín ræsti verksmiðjuna á þriðja degi ráðstefnunnar, sem hófst á mánudaginn.

Úr verksmiðjunni á Shikotan-eyju.
Úr verksmiðjunni á Shikotan-eyju. Ljósmynd/Skaginn 3X
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »