Ísfisktogarinn Bergey VE landaði í síðasta sinn undir merkjum Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum í gær. Aflinn var 65 tonn, mest ufsi og karfi, að því er segir á vef Síldarvinnslunnar. Stefnt er að því að skipið fari í slipp í dag.
Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði hefur fest kaup á skipinu og verður það afhent nýjum eiganda í næstu viku. Bergey var smíðuð árið 2007 fyrir Berg-Hugin í Gdynia í Póllandi og er skipið 486 brúttótonn að stærð. Systurskip Bergeyjar er Smáey VE.
Þá segir á vef Síldarvinnslunnar að ný Bergey sé í smíðum í Noregi og verður hún afhent Bergi-Hugin síðar í þessum mánuði. Nýja Bergey er systurskip nýju Vestmannaeyjar sem kom til landsins í júlí.
Jón Valgeirsson skipstjóri og Ríkharður Stefánsson matsveinn hafa verið í áhöfn Bergeyjar frá upphafi. Haft er eftir Jóni að það sé erfitt að kveðja Bergey. „Jú, blessaður vertu. Maður mun eiga góðar minningar um þetta skip. Ég var stýrimaður á Bergey frá upphafi til ársins 2014 en tók þá við sem skipstjóri og það hefur bara gengið vel.“
Jón segir skipið afar vel heppnað í alla staði. „Það hefur fiskast vel á það og það hefur farið vel með mannskapinn. Síðustu árin, eða eftir að Síldarvinnslan eignaðist útgerðina, hefur meiri kvóti verið til ráðstöfunar og það hefur alltaf tekist ágætlega að ná honum.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 192,19 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 120,61 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,33 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.154 kg |
Þorskur | 104 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Skarkoli | 18 kg |
Samtals | 2.297 kg |
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 52 kg |
Samtals | 52 kg |
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.903 kg |
Þorskur | 288 kg |
Steinbítur | 25 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 10 kg |
Samtals | 2.240 kg |
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.440 kg |
Samtals | 1.440 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 192,19 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 120,61 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,33 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.154 kg |
Þorskur | 104 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Skarkoli | 18 kg |
Samtals | 2.297 kg |
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 52 kg |
Samtals | 52 kg |
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.903 kg |
Þorskur | 288 kg |
Steinbítur | 25 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 10 kg |
Samtals | 2.240 kg |
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.440 kg |
Samtals | 1.440 kg |