Hvers vegna er Ísleifur grænn?

Nýjasti Ísleifur VE 63 nýmálaður og glæsilegur. Litirnir, grænn og …
Nýjasti Ísleifur VE 63 nýmálaður og glæsilegur. Litirnir, grænn og gulur, eru réttir enda eru litanúmerin varðveitt hjá Slippfélaginu. Allt er gert eftir kúnstarinnar reglum mbl.is/RAX

Þetta er spurning sem ýmsir veltu fyrir sér í sumar þegar Ísleifur beið þess nýmálaður og flottur að vera rennt niður úr Slippnum í Reykjavík.

Söguna bak við bátsnafnið og græna litinn er að finna í samantekt Guðmundar Sv. Hermannssonar, fréttastjóra Morgunblaðsins, í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1998: Í útgerð með óbilandi bjartsýni og þúsund krónur í vasanum. Svipmyndir af Ársæli Sveinssyni á Fögrubrekku:

Það er drepið á skrifstofudyrnar hjá Gísla J. Johnsen, útgerðar- og verslunarmanni í Vestmannaeyjum, dag einn árið 1912. Fyrir utan stendur 18 ára unglingur með stóra framtíðardrauma. Gísli býður honum sæti og spyr hvað hann geti gert.

„Geturðu ekki pantað fyrir mig bát?“ segir unglingurinn.

„Fyrir hvern?“ hváir Gísli.

„Fyrir mig“ svarar ungi maðurinn.

„Fyrir þig, áttu nokkuð?“ spyr Gísli.

Þá dregur unglingurinn þúsund krónur upp úr vasanum og leggur á borðið. „Það hefur margur byrjað með minna,“ segir Gísli, sem sjálfur var aðeins um tvítugt þegar hann hóf verslunarrekstur og útgerð. Hann afræður að hjálpa unga manninum og útvegar honum 10 tonna mótorbát frá Danmörku, smíðaðan í Frederikssundi, en stærri báta fluttu dönsku póstskipin ekki hingað til lands. Kominn í heimahöfn kostar báturinn 7.955 krónur og útgerðarmaðurinn ungi, og meðeigendur hans tveir, skulda því mestallt bátsverðið. Hann ákveður því að skíra bátinn sinn viðeigandi nafni: Skuld.

Ársæll Sveinsson átti bátinn og gerði út frá 1928 til …
Ársæll Sveinsson átti bátinn og gerði út frá 1928 til 1967. Það reyndist svo að Ísleifur var mikið happaskip

Þannig hóf Ársæll Sveinsson á Fögrubrekku í Vestmannaeyjum útgerð sína sem átti eftir að vaxa og margfaldast eftir því sem árin liðu. Og auk þess að standa fyrir umfangsmiklum fyrirtækjarekstri, stofnaði m.a. verslun og slipp auk útgerðar og fiskvinnslu, var Ársæll einn af forustumönnum bæjarfélagsins um áratuga skeið.

Seldi Skuldina og keypti Ísleif

Síðar segir Guðmundur:

Árið 1927 seldi Ársæll Skuldina og keypti sinn fyrsta Ísleif. Þetta var 30 tonna eikarbátur, smíðaður í Reykjavík árið 1916, og var búinn línulagningarrennu, þeirri fyrstu Í Eyjabát. Þetta þótti mikil tækninýjung sem gerbreytti línulengdinni og þar með aflabrögðum og létu allir aðrir smíða slíka rennu í báta sína. Báturinn hafði verið á Ísafirði en Ársæll keypti hann af Landsbankanum í Reykjavík. Síðar sagði Ársæll svo frá:

„Ég fór til Reykjavíkur til að ganga frá kaupunum og þar sem ég var á gangi á götu stoppaði mig maður og spurði mig hvort ég væri ekki Ársæll Sveinsson. Ég játti því og þetta var þá Magnús heitinn Thorberg en hann hafði átt Ísleif áður. Hann sagði mér að þetta væri happafleyta og bað mig um tvennt í sambandi við bátinn: Að breyta ekki nafninu Ísleifur og ekki heldur litnum á bátnum sem var grænn. Hvort tveggja hef ég haldið og það hefur reynst mér vel. Og reyndar hef ég gætt litarins svo vandlega að ég hef látið mála nýmálaða báta aftur, ef mér hefur eitthvað þótt athugavert við litinn.“

Ársæll Sveinsson og Stefán Árnason lögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Þeir voru …
Ársæll Sveinsson og Stefán Árnason lögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Þeir voru þekktir borgarar Eyjanna á sinni tíð og Ársæll öflugur í bæjarmálum.

Það reyndist rétt sem Magnús Thorberg sagði að Ísleifur væri happaskip. Ársæll var formaður á Ísleifi í þrjár vertíðir og fékk á honum sinn stærsta róður, um 8.000 fiska í fjórar 15 neta trossur. Alls eignaðist Ársæll fimm Ísleifa áður en yfir lauk. Þann síðasta, 243 lesta stálskip, sótti hann til Noregs árið 1967, þá 73 ára gamall, og sigldi honum heim en þetta skip, sem þótti þá eitt glæsilegasta fiskiskip íslenska flotans, bar sama nafn og númer og sá fyrsti: Ísleifur VE 63.

„Við breytum þessu ekki“

Það skip var síðar í eigu Leifs, sonar Ársæls, hélt sömu venju og faðir hans og lét mála bátinn grænan og gulan; raunar var sérstakt málningarnúmer geymt í Slippfélaginu með rétta græna litnum.

Í október 2003 sameinaðist útgerð Ísleifs Vinnslustöðinni. Eigendur Ísleifs fengu greitt fyrir útgerð sína með hlutabréfum í VSV.

Nýjasta Ísleif og þann sem var í Slippnum í Reykjavík í sumar keypti Vinnslustöðin af HB Granda árið 2015. Skipið hét áður Ingunn og bar einkennisstafina AK, heimahöfn Akranes. Ísleifur hinn nýi var að sjálfsögðu málaður grænn.

„Ísleifur hefur alltaf verið grænn með gulum röndum og hefur farnast sérstaklega vel, við breytum þessu ekki,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni), framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, í samtali við Morgunblaðið eftir kaupin.

Gamli Ísleifur, sem Leifur sonur Ársæls hafði gert út og Vinnslustöðin keypti, var seldur til Noregs árið 2016 og notaður til selveiða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,87 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,61 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Viðey RE 50 Botnvarpa
Ýsa 51.134 kg
Karfi 26.235 kg
Þorskur 18.388 kg
Ufsi 18.309 kg
Samtals 114.066 kg
24.4.24 Vigur SF 80 Lína
Steinbítur 483 kg
Þorskur 372 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 938 kg
24.4.24 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 188 kg
Ýsa 130 kg
Steinbítur 112 kg
Keila 15 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 1 kg
Samtals 451 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,87 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,61 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Viðey RE 50 Botnvarpa
Ýsa 51.134 kg
Karfi 26.235 kg
Þorskur 18.388 kg
Ufsi 18.309 kg
Samtals 114.066 kg
24.4.24 Vigur SF 80 Lína
Steinbítur 483 kg
Þorskur 372 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 938 kg
24.4.24 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 188 kg
Ýsa 130 kg
Steinbítur 112 kg
Keila 15 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 1 kg
Samtals 451 kg

Skoða allar landanir »